Kirkjuritið - 01.07.1935, Qupperneq 66
314
Prestastefnan.
Kirkjuriti'ð.
5. „Prestastefnan telur brýna þörf á stofnun drykkjumanna-
hælis, og skorar á ríkisstjórnina að framfylgja nú þegar ákvæð-
um áfengislaganna í því efni“.
,, Séra Halldór Kolbeins flutti erindi um
iVlessur oe*
, , ,s messur og prédikanir, og urðu um það
predikanir. nokkrar umræður. Snerust þær annars-
vegar um utvarpsguðsþjónustur og hvernig þær mættu verða
að sem mestu gagni, en hinsvegar um kirkjulestra, þ. e. notkun
kirkna til guðsþjónustuhalds að presti fjarverandi. Tíðkast
slikar lestrarguðsþjónustur hjá frændum vorum Færeyingum,
þegar prestur messar á annari kirkju. Safnast menn þá saman í
söknarkirkju sinni og syngja sálma, en djákninn les prédikun
úr einhverri postillu. Slikar guðsþjónustur hafa einstaka sinn-
um verið haldnar i kirkjum hér á landi, aðallega á hátíðum, en
þyrftu að verða alm ;nnari. í hinni nýju Helgisiðabók vorri er
gjört ráð fyrir, að slíkar guðsþjónustur geti farið fram í kirkju
eða í samkomuhúsi, þar sem leikmaður stjórnar guðsþjónust-
unni og flytur prédikun eftir sjálfan sig eða annan. Gefur Helgi-
siðabókin leiðbeiningar um, hvernig slíkum guðsþjónustum
megi haga. — Sigurður Sívertsen hvatti prestana til að sjá
um, að kirkjur i kauptúnum og þar sem þéttbýli er verði
framvegis notaðar á þennan hátt til guðsþjónustuhalds miklu
víðar en nú þekkist á landi voru.
,,, . Séra Gísli Skúlason flutti erindi um
Vt i«o nr|u
t". . Strandarkirkju og sjóð hennar, og hvernig
írkja. j- kirkjunnar yrði bezt ráðstafað í fram-
tiðinni, kirkju og kristindómi til eflingar.. — Umræður urðu
nokkrar um málið og því síðan vísað til Kirkjuráðs.
Kirkjulega
ástandið í
Þýzkalandi.
Um það efni flutti cand. theol. Regin
Prenter mjög fróðlegt erindi. Hefir hann
dvalið í Þýzkalandi og kynst kirkjulífinu
þar og ýmsum af helztu kirkjulegu leið-
togunum.
Tákn
tímanna
hét erindi, sem séra Friðrik Hallgrims-
son flutti. Var það bróðurleg brýning til
prestanna, að reynast sem bezt á þessum
erfiðu tímum. — Nokkrar umræður urðu á eftir.
Þessi tillaga var samþykt með samhljóða
atkvæðum:
„Prestastefnan mælir með því, að prest-
ar helgi kristniboðsmálinu a. m. k. eina guðsþjónustu á ári, og
telur eðlilegt, að við þá guðsþjónustu sé safnað fé til kristniboðs"
Kristniboðs-
mál.