Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.07.1935, Side 76

Kirkjuritið - 01.07.1935, Side 76
324 Ásmundur Guðmundsson: Kirkjuritið. hvert sem leiðin kann að liggja. Vér verðum að leita hærra til lians, enda þótt það verði kross, sem hefur oss upp að honum eins og' í sálminum stendur. Vér verðum, þegar á reynir, með einhverjum hætti að drekka af sama bikarnum og skírast sömu skírninni sem lærisveinarnir, er um liásætin báðu. Fórnarleiðin liggur lil lífsins, síngirnisleiðin til glötunar. Og það er alveg sama lögmálið, sem ríkir í lífi einstaklinga og þjóða. Með því að opna sálir vorar fyrir guðdómsmætti kærleikans, geislastaf lifssólarinnar til þessarar jarðar — Kristi, þá björgum vér ekki aðeins i æðstum skilningi lífi sjálfra vor, heldur einnig lífi þjóðar vorrar. Ég sé ekkert annað en áhrifin frá Ivristi, er geti forðað því við hruni, andlega, siðferðilega — og efnalega, því að þar sem fyrst er leilað guðsríkis, þar mun alt annað veitast að auki. Eigingirnin er undirrót vorra þjóðlífsmeina, haturs- ins, öfundarinnar, illgirninnar og fláttskaparins, og þeirri rót getur ekkert unnið á nema hinn lieiti eldur, sem leggur frá kærleika Krists og kærleika föðursins. Hann einn megnar að brenna sorann burt úr þjóðlífinu. Og hann mun einnig veita oss kraft til að skilja, að hver einlæg og sönn viðleitni og þrá til að bæta úr böli ein- staklinga og félagsböli er af Guði vakin, og að ávextir kristninnar eiga að verða miklir og dýrlegir á því sviði. Þá munum vér sjá, að í kristnilífi vorrar þjóðar eins og annara þjóða liafa trén um of skygt á skóginn, ein- staklingarnir á félagsheildina, og að nú verður kristnin að beina meir afli sínu að félagsmálunum, hefja öflug samtök til umbúta og vinna þannig fagurt guðsríkis- starf. Þá vitum vér á þessum degi, hvað til friðar lieyrir. Með fyrstu bátshöfninni, sem sigldi að fslandsströnd- um, hóf Kristur hér innför sína. Hann hafði fylgt sjó- mönnunum um liafið eins og bræðrum þeirra á Genesa- ret forðum og vindur og sjór ekki grandað veiku fari. Þeir sáu fjöllin rísa hvert af öðru, hallir og hamraborgir

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.