Kirkjuritið - 01.07.1935, Blaðsíða 80
328 A. G.: Séra Sigurður Þórðarson. Kirkjuritið.
Séra Sigurður var kvæntur Björgu Jónsdóttur frá
Vaði í Skriðdal, og eiga jiau tvær dætur á lífi.
Þeim, sem þetta ritar, verður það allra minnisstæðast
um séra Sigurð, með hve mikilli trúardjörfung hann har
þrautir sínar og hversu hátt andi hans gat hafið sig upp
vfir jiær. Þannig skrifaði hann t. d. eitt sinn jiessi hæn-
arorð:
„Guð! Þú hinn eilífi, sem i ljósinu býrð! Um þig
sveipast kraftarnir í hvirfingu hvítra skara. Frá þér
strevma elfar hins eilífa kærleika um alla heima ger-
vallrar tilveru, í Jiöglum nið hoða jiær mikilleik veldis
jiins og vizku og vökva um döggsvalar lendur hið gró-
andi líf með svölun þinnar heilögu náðar. Allir ómar
lífsins eru ómar elsku þinnar, æðandi stormar og hinn
svalandi hlær, brosandi geislinn og hið ögnandi ský, alt
sem laðar og gleður, alt sem knýr á, afl og djörfung,
ait — alt eru jiað elfar elsku þinnar, skapandi máttur
og lifsins heilagi vísdómur. Þú Guð ert einn þú i
oss og vér i jiér, Þú ert hinn eilifi, hið stærsta og hið
smæsta, hin almáttka eining öreinda og alheims. Hin
fagnandi gleði, hin blýþunga sorg, hvert tár og hvert
hjartaslag, alt vort lif, alt er þetta vísir jieirra verðandi
vera, sem vakna til að verða áform jntt, er rísa skal
himnunum hærra. Hið veika liros, hið titrandi andvarp,
hin leikandi æska og hin svala gröf, alt vort lif, alt er
Jiað upprisa jiess lífs, sem andi þinn vekur, eilif smæð
í eilífri stærð. Andi þinn er eilíft geislamagn eilífs lífs,
og í eilifri einingu við þig sveipast kraftar hinna eilífu
úthafa um helgidóm dýrðar þinnar i hvirfingum livítra
skara. Lífið er þin dýrð. Guð, þú ert i oss, og vér
í þér“.