Kirkjuritið - 01.07.1935, Síða 85
KirkjuritiS.
Erlendar bækur.
333
dýrar, vegna gengismunar, og flestar þær bækur, sem ítarlega
fræðslu veita um þetta, eru allstórar.
Þessvegna fanst mér, að rétt mundi vera að vekja athygli á of-
annefndri bók Brunners. Efni hennar eru fyrirlestrar, sem höf.
flutti i Englandi, samkvæmt beiðni Háskólans í London, er óskaði
að gefa mönnum áreiðanlega og eftir ástæðum ítarlega fræðslu
um grundvallarhugsanir „dialektisku“ guðfræðinnar. Framsetn-
ingin er mjög blátt ófram og skýr, og danska þýðingin virðist
ágætlega gerð. Bókin skiftist i 5 aðalkafla: Guds Ord og For-
nuften, Iíristi Ord og Historien, Aandens Ord og Psykologien,
Bibelens Ord og Videnskaben, Kirkens Ord og Menneskesam-
fundet. — Hér er því sem sagt tilvalin bók til að kynnast þessari
merkilegu guðfræðistefnu allrækilega án mikillar fyrirhafnar.
Bókin er einnig svo ódýr, að enginn þarf að fara á mis við
hana þess vegna.
Ætti því hver einasti prestur landsins, sem ekki liefir þegar
kynt sér þetta mál til lilítar, að kaupa þessa bók, og mun enginn
sjá eftir því — hvort sem menn verða sammála henni eða ósam-
mála. Hún er svo skilmerkilega skrifuð, að þeir, sem ekki eru
guðfræðiugar, munu líka geta notið hennar að miklu leyti. —
Er ég var byrjaður að lesa hana, gat ég ekki hætt fyr en ég
var búinn með hana, — og svo hygg ég að fleirum mundi fara.
Og þó var ég innilega ósammála sumu af því, sem höf. segir,
t. d. um biblíukritikina í 4. kaflanum.
Valgeir Skagfjörð.
Ný bók eftir E. Stanley Jones.
E. Stanleg Jones: „Christ and Communism". — London.
Hodder & Stoughton. 1935.
Kristin kirkja verður fyrr eða siðar að gera upp sakirnar
við kommúnismann. Hún verður að gera sér það ljóst, hvað
kenning Jesú hefir að bjóða fram yfir kenningar Marx og
Lenins, og í hverju guðsríki Jesú Krists er æðra Sovjetrikinu.
En hún verður þá einnig að vera því viðbúin, að geta með full-
kominni hreinskilni viðurkent, í hverju Sovjetríkin standa ef til
vill nú þegar framar hinum vestrænu auðvaldsríkjum. — Þetta
hefir Stanley Jones gert í hinni síðustu bók sinni Christ and
Communism. Og hann gerir það með svo geiglausri og óbug-
andi hreinskilni, að óblandin ánægja er að. Þessi stórmerki trú-
hoði ritar af svo mikilli lífsreynslu, svo ríkri mannúð, víðsýnu
mannviti og brennandi umbótahug, að kristnin á nú fáa rithöf-
unda honum snjallari og heilsteyptari í skoðun og starfi. Aleð
hvassri rökfimi setur hann fram þá kenningu, að mannkynið