Kirkjuritið - 01.07.1935, Síða 87
Kirkjuritið.
Fréttir.
335
starfs í þágu hennar. Og allir hinir ágætustu menn kristninnar
eru nú farnir að koma auga á það, að ef nú á ekki alt að hníga
á ógæfuhiið fyrir mannkyninu, verður sú trúarvakning, sem nú
fer í hönd, að leggja ríka áherzlu á hina félagslegu velferð, hún
verður að gagnsýra alt stjórnarfar og alt athafnalíf vort.
Þegar guðspjöllin eru lesin með athygli og gaumgæfni, kemur
það í Ijós, að verulegur hluti af kenningum Jesú fjallaði um
tilkomu guðsríkisins „svo á jörðu, sem á himni“ Þetta megum
vér ekki láta oss sjást yfir, því að afleiðingin verður sú, sem
raun hefir orðið á: Ófarnaður mannkynsins. Stanley Jones út-
skýrir þessi hoðorð, í hinni nýju hók sinni, með sínu alkunna
andríki og skemtilegu mælsku. Mun þetta vera ein hin veiga-
mesta bók, sem komið hefir frá hans hendi.
í þessu sambandi vil ég vekja athygli á því, að „Kristur á
vegum Indlands11 (The Christ of the Indian Road), er birtist í
þýðingu séra Halldórs Ivolbeins í tímaritinu „Jörð“, er nú
komin út í sérprentun á Akureyri á kostnað Odds Björnssonar,
svo að íslenzkir lesendur eiga nú hægt með að ná í þessa ágætu
bók, sem fyist gerði höfundinn heimsfrægan. B. K.
FRÉTTIR.
Séra Jakob Jónsson,
prestur að Nesi í Norðfirði, sem dvalið hefir vestan hafs síðan
í fyrra haust og starfað hjá löndum vorum í Winnipeg og víðar
mn bygðir íslendinga, segir frá því í bréfi frá Wynyard, dags.
6. júní, að hann og séra Kristinn K. Ólafsson, forseti evangelisk-
lúterska Kirkjufélagsins, hafi i Kandahar og Wynyard i Sas-
katchewanfylki flutt erindi saman um kristindóm og þjóðfélags-
mál, við góða aðsókn. „Hneigjumst báðir á þá sveif, að kirkjan
og verklýðshreyfingin eigi að vinna saman“.
Gjöf til Glaumbæjarkirkju.
Séra Hallgrímur Thorlacius í Glaumbæ, sem lætur af prests-
störfum í haust, hefir gefið kirkjunni heima á staðnum altaris-
dúk forkunnarfagran, svo að ekki mun finnast annar slikur hér
á landi.