Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 5
Kirkjuritið.
Stríðstimar.
291
þína frani á altarið, og þú minnist þess þar, að bróðir þinn
hefir eitthvað á móti þér, þá skil gáfu þína þar eftir fvrir
framan altarið og far burt, sæztu fyrst við bróður þinn,
og kom siðan og ber fram gáfu þína“. „Þér skuluð ekki
rísa gegn meingjörðamanninum, en slái einbver þig á
bægri kinn þína, þá snú þú einnig binni að honum“. „Slíðra
þú sverð þitt. Allir þeir, sem grípa til sverðs, munu farast
fyrir sverði“. Samverjinn, er bindur um sár manns þeirrar
þjóðar,sem liataðiSamverja og fyrirleit, bjúkrar honum og
sér um bann, unz hann verður heill, er fyrirmyndin. „Gjör
þú þetta, og þá muntu lifa“. Þannig kendi Kristur. Og hann
lifði eins og bann kendi, elskaði alla menn, fórnaði fyrir þá
lífi og starfi og bað deyjandi fyrir þeim, sem létu negla
hann á kross: „Faðir fyrirgef þeim, því að þeir vita ekki,
bvað þeir gjöra“. 1 þessu er kristindómurinn innifalinn.
Gjaldþrot beimsins, hrun lieimsmenningarinnar stafar aí
því, aðheimurinn hefir þverskallast gegn boðum bans, sem
hefir orð eilífs lífs. Viljum vér halda lengra áfram á þeirri
braut? Vér stöndum andspænis valinu mikla, sem alt er
undir komið bæði þessa heims og annars. Kjósum vér oss
stöðu í flokki þeirra, sem krossfestu Krist með því að
þjóna heimslund sinni og ganga veginn til dauða, eða vilj-
uin vér skipa oss undir merki Krists og velja hann að
konungi þjóðar vorrar og hjartna vorra? Það er vegurinn
til lifsins. En milli þessara vega verður ekki haltrað unx
aldur og æfi. Sama kallið, sem barst forðum með strönd-
l'm Genesaretsvatnsins, um liliðar og hálsa Galíleu, borgir,
og bygðir, berst nú til vor um landið alt, frá efstu ijalls-
eggjum og út til yztu miða, kall Krists: „Gjörið iðrun og
h'úið fagnaðarboðskapnum“. Eina úrræðið, sem til er, er að
hlýðnast því kalli, snúa við og ganga Kristi og fagnaðar-
erindi lians á hönd alveg skilyrðislaust. í þeim anda fyrst
°g fremst þarf að gjöra það, sem framkvæmt verður til
Verndar og viðreisnar þjóðinni.
En af því leiðir það, að enn eiga stríðstímarnir að verða
0ss bænatímar. Gegn öflunum djöfullegu, sem stríðunum