Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 9

Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 9
KirkjuritiS. Trúarbragðafræðslan í skólum. 295 fræðslu, og hvað þá þeim, er telja sig ókristna. Það mætti að sönnu ætla, að þeim mundi liggja það í léttu rúmi. Eu það er engan veginn víst, að svo sé. Margir foreldrar lmgsa sem sé eittlivað á þessa leið: Ég þarfnast að sönnu ekki kristinnar lífsskoðunar, cn ég veit ekki, nema börnin mín kunni að lita öðruvísi á það mál. Eg vil, að þau fái tækifæri til að velja sjálf, og ég vil ekki tálma þvi, að þau geti gengið kristninni á hönd, ef þau skyldu síðar finna hjá sér þrá til þess. Og það verður þeim eðlilegia og ljúfara, ef þau hafa verið skírð á barnsaldri, heldur en ef þau verða að skírast skírn fullorðinna. Þesskonar inigs- anir met ég góðar og gildar og tel það mikinn kost, að kristindómsfræðslan í skólum gjöri öllum foreldrum, sem vilja, greiða leiðina með börn sín að skírnarfontinum. Ennfremur lit ég svo á, að gildi kristindómsins sé s\o mikið, að fyllilega sé réttmætt, að allir fái að kynnast hon- um áður en þeir velja sér lífsskoðun. Um kristna menn ætli það að leiða af sjálfu sér, að þeir vildu, að börn þeirra fengju nokkura þekkingu á því, hvað kristindóm- urinn er í raun og veru. Og öðrum foreldrum ætti einnig að vera það áhugamál, að hörn þeirra fengju þá vitneskju mn kristindóminn, að þau gætu af viti og þekkingu valið hann eða hafnað honum. Til þess að þau geti yfirleitt skilið kristinn lioðskap, kristnar hókmentir, kristið and- ans líl' og metið, þá verða þau að hafa fengið frá barnæsku nokkura þekkingu á Bihlíusögum, sálmuin og aðalkenn- ingum kristindómsins. Að öðrum kosti mun þetta koma þeim undarlega og óskiljanlega fyrir. Uppeldis-rökin Imíga einnig í sömu átt, að lialda skuli kristindómsfræðsluuni í skólunum. Það sem kent er ei harla veigamikið. T. d. sálmarnir. Börnunum er ætlað nð læra ljóð, og til þess eru margir sálmar ágætlega falln- ir- Þótt trúargildi þeirra sé slept, þá er listagildi sumra þeirra undursamlega mikið. Og i Biblíusögunum er margt vænlegt til þess að hafa hollustu uppeldisáhrit á börnin. Þær hafa að geyma i auðskildum húningi dýrasta andans

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.