Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 19
Kirkjuritið.
Vald þjónusta.
305
Hver hugsun hlý, hvert ástríkt orð
oss æðri fylling ljær,
sem fljót er vex og fríkkar mest,
])á færist liafi nær.
Ef rækjum skyldu’ af heilum hug,
þótt hart oss reyni á,
1 herrans augum háleitt starf
vór höfum unnið þá.
Svo getum hlutverk göfgað smátt
við glæður kærleikans,
Og þyrnisveigum sárum breytt
í sigur-geislakrans“.
hessi er leiðin til að verða mikill í ríki hans, sem kom til
þess að þjóna og láta líf sitt til lausnargjalds fyrir marga,
hans, sem vegna slaðfestu sinnar í líðandi elsku er kon-
l'ngur kærleikans að eilífu þessa heims og annars. Þessi
er leiðin lil að flytja Guðs friðar- og kærleiksríki á voru
iögru en flekkuðu jörð.
Árni Sigurðsson.
Á BÆNARSTUND í KIRKJU.
Eg finn, mig nálgast frelsarinn,
óg finn, hann ríkir hér.
Eg veit, að liann er vinur minn
og vakir yfir mór.
Hervör.