Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 24

Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 24
.'510 Richard Bcck: öktóber. þeirra karla og þeirra kvenna, er grundvöllinn lögðu og skiluðu niðjunum í liendur gróandi stofnun; að gróðr- aröfl sé enn að verki i lifi safnaðarins, sést glegst af því, að á demantsafmælinu bættust honum 110 nýir með- limir. Fyrsti lúterski söfnuð- urinn hefir verið lánsaniur i foringjavali sínu; átt af- burðamönnum á að skipa, svo sem dr. Jóni Bjarnasyni og dr. Birni B. Jónssyni. Vel hefir og söfnuðinum tekist til nni val sins nýja prests, séra Valdimars .1. Eylands, sem sakir ágætra hæfileika og frábærrar sjálfsræktar niá margháttaðs nytjastarfs vænta af. Með ldiðsjón af glæsi- Iegri fortíð sinni hefir söfnuðurinn gilda ástæðu til að líta björtum augum á framtíðina.“ Skal þá rakin sextíu ára saga þessa stærsta, og vafalaust um margt hins merkasta, islenzka safnaðar i Vesturheinii, í aðaldráttum. Sú saga er eðlilega næsta atburðarík, þv‘ að „margt gerist á langri leið“. Stofnun þessa safnaðar átti sér, eins og önnur kirkjuleg og kristileg slarfsenii meðal íslenzkra frumbyggja vestan hafs, rætur sínar í ríkri og djúpstæðri trúarhneigð þeirra og guðrækni. Það verður aldrei ol mikil áherzla lögð á þá grundvallarþæth í skapgerð þeirra og lífsskoðun yfirleitt. íslendingar byrjuðu að setjast að i Winnipeg árið 1875 °g hættist allmargt fólk í hópinn á næstu tveim áruni. Eigi var þó um fasta kirkjulega starfsemi að ræða þeirra á meðal fyrst í stað, en eins og tíðkaðist i öðrum nýbygð- um þeirra vestra, konm menn saman til húslestra á sunnu- Dr. Jón Bjarnason.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.