Kirkjuritið - 01.10.1939, Síða 42
328
Vigfús Guðmundsson:
Október.
— Á eftir þessari fögru (!) kirkjulýsingu, kemur svo lýsing af
fjósi, en ekki öðrum húsum. Tekur það „um 34 naut“. Meðal
annars er það „i tveim stöðum aldeilis innfallið.... og óbrúkandi
fvrir menn og skepnur."
Til staðfestingar o. s. frv.
Guðm. Runólfsson. Þórður Bjarnason. Tómas Hansson.
(Frumrit i ÞjóSskjs. A. 152).
Kirkjan í Viðey 1774.
Eftir afriti í Þjóðskjs. af skoðunargerð 6 manna 22.
ágúst 1774, eftir fyrirskipun Thodals amtmanns og
forgöngu Björns Markússonar lögmanns. Aðrir ekki
nefndir. En þó vafalaust eftir ósk Skúla fógeta, því
að liann mun sjálfur liafa kostað bygginguna að miklu
leyti. Lýsingin er á dönsku, og stytt mikið í þýðing hér.
Kirkjan er bygð úr íslenzku grjóti, öllu múruðu, (i stafgólf,
15 X 12 álnir, 6 álna há undir loft, og af því 5% alin í mænir.
Hún er grundvölluð á niðurgröfnu grjóti, 2%—3 álnir á dýpt.
Gaflveggirnir eru 9 álnir 19 þumlungar á liæð frá jörð. Þykt
veggjanna er 114 alin til 20 þumlungar. Gluggar eru 3 á hvorri
hlið, 2 álnir 16 þuml. á hæð og 1 al. og 20 þuml. á breidd, með
krosspósti og eru fjórir enskir gluggarammar i hverju glugga-
stæði, 2 af þeim eru með 6 rúðum livor, en 2 með 4 rúðum. Múr-
dyrnar eru 3% alin á hæð og 2 álnir á vídd. Á framstafni er gluggi
með 4 rúðum, % X % alin. Allar rúður heilar. Á bakgafli fyrir
ofan loftið er líka op ÍV-i X 1 alin, með hlera fyrir. í dyrunum eru
tvær læstar hurðir með vönduðum frágangi. Þakið er einfalt, að
hálfu leyti úr „pommernskum“ plönkum, og að öðru leyti úr góðum
verzlunarborðum. Þéttað er það og tjargað, og svo málað rauð-
brúnt, ásamt þar tilheyrandi listum (,,Gessemser“). Klukknaport
lítið („Klocke Torn“) er (á miðju) þakinu, með 3 klukkum. Þar
er og vindhani („Flöy 12 x 9 þuml.“) úr kopar á hárri járn-
stöng ferhyrndri, með stórri koparkúlu efst. Undir gólfinu eru 5
bitar langsum í kirkjunni og á þeim hvíla 9 (siðar sagt 8) hlerar,
með 2 járnhringum hver, til að opna og loka — ef jarðað yrði
innan kirkju.
Undir altarinu og umhverfis það er pallur (gráða) 4% X 3%
alin, með grindum skornum á allar hliðar, og krókaðri hurð á
hjörum. Knéfall (,,Skannneler“) er við pallinn, stoppað og yfir-
fóðrað með nýju klæði.
Prédikunarstóllinn er yfir altarinu, spjaldasmíði („Pannelverk,