Kirkjuritið - 01.10.1939, Blaðsíða 43
Kirkjuritið.
Ólíkar kirkjur.
329
rftir Tegningen“). Yfir honum er himinn, með kransi í kring. Bak
við altarið eru þrep upp í stólinn með hurð fyrir, og þar á móti
hurð á hjörum fyrir geymslu. All er þetta málað með olíulit,
hláum, rauðum og grænmn, liverjum þeirra í 4 litbrigðum. Við
ultarið er líka laust knéfall, yfirklætt. Frammi i kirkjunni voru 5
stólar að austanverðu og 4 að vestan, (stigi þar. Kirkjan snýr í
suður). Þeir eru með brikum og skornum bakfjölum, festir saman
- i laus fótstykki, svo bera má þá til eftir hentugleikum. Þil er
niilli kórs og kirkju með samskonar skornum fjalarimum („Pil-
arer“). Instu bekkirnir eru fóðraðir með klæði. Úti við veggi í
kirkju og kór eru 8 fastir bekkir. Þeir eru málaðir eins og stól-
arnir, með perlu-bláum og rauðum lit. Svo er og skriftastóll, með
yfirklæddu knéfalli. Stigi til loftsins er vinstra megin við inn-
Sanginn, afþiljaður, og þar 2 liurðir á hjörum, málað. Ljósaliljur