Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 45

Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 45
Kirkjuritið. Ólíkar kirkjur. 331 af. Þakið á kirkjunni var einfalt 1777, en loforð þá um ytra þak.*) Eigi sést, hversu lengi var verið að byggja kirkjuna, né heldur hvenær fúaskriflið var jafnað við jörðu. En i rúm 20 ár, frá þvi Skúli fógeti kom í Viðey (1751), hefir þar ekki verið nein kirkja messufær. Sést þetta af því, að prófasturinn, séra Guðlaugur Þor- geirsson, „vísiterar“ árlega nál. allar kirkjur í Kjalarnesprófasts- dæmi frá 1753—1774, en aldrei í Viðey. Á þeim tíma hefir Viðeyj- arfólkið (öll sókn kirkjunnar þar) sótt messur að Gufunesi, því að þar er styzt og bezt til lands að leita. Og var Skúli „gamli“ þá ekki heldur aðgerðalaus, því að hann kom því til leiðar, að árið 1755 var loks eftir 3 ár búið að endurbyggja kirkjuna í Gufunesi. Var hún þá „þiljuð í hólf og gólf“, með stafnþiljum og „þaklausri" timbursúð. En þarna gefur að iíta eitt dæmi af ótal mörgum um gæði viðarins, sem einokunin færði löndum vorum, og um varan- leik lcirknanna hér á landi. Þá þegar er „súðin svört, einkum að sunnanverðu, er gefur til kynna að' borðviðurinn hafi verið slæm- Ur“, segir prófasturinn. — Tjörgun að utan á þó að varna fúa. Viðir voru þá líka votir og grannir. Og eftir ein 6 ár er kirkjan farin bæði að leka og fúna, og undirviðir allir vatnsósa. Voru því veggirnir teknir frá kirkjunni, þvi að þeir voru þá „orðnir gagnónýtir og fordjarfa kirkjuna meir og meir“. Fleiri heimildir fundnar. Hingað til hefir rikt alger óvissa um það, hvenær rifin var fúna kirkjan í Viðey, á hvaða árum steinkirkjan var bygð, hver kostaði hana í fyrstu og fleira þar að lútandi. Nú eru enn fundin nokkur bréi' í Þjóðskjalasafninu (helzt i hréfum til bisk. úr Knþ.), sém fáir hafa hirt um að leita að, eða leggja tíma sinn i að lesa. Þykir því ástæða til þess, að birta hér örlítinn útdrátt um þetta efni: E 1753. Guðlaugur Þorgeirsson próf. í Ivnþ. hefir beðið Gísla Sigurðsson sóknarprest í Seltjarnarnesþ. að segja álit sitt um það, hvort ekki mætti leggja niður kirkjurnar í Viðey og Engey. I svarbréfi, 30. júní 1753, telur prestur þær nauðsynlegar, sér- staklega vegna gamals fólks og örvasa, sem ekki þolir sjóferð til hirkjusóknar, sízt í misjöfnu veðri. 2. 1756. Bréf Skúla fógeta til F. J. biskups i Skálholti, 2. sept- ember 1756. Segir Skúli þar, að Ól. Gislason biskup hafi í skýrslu hl konungs talið Viðeyjarkirkju meðal þeirra, sem leggja mætti ") Uppdrætlirnir (4) eru nú í Þjóðminjasafninu. Lýsing lcirkj- unnar er í fullkomnu samræmi við þá.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.