Kirkjuritið - 01.10.1939, Qupperneq 51
Kirkjuritið.
Innlendar fréttir.
337
Um leið og fundurinn sendir yður þessa kveSju og ávarp, skorar
hann á yður að gera alt, sem í yðar valdi stendur, til þess, að hin
norðlenzka kirkja mætti nú á þessum alvörutímum skilja hlutverk
sitt og flytja þjóð vorri fagnaðarerindi friðarins á þann hátt, sem
er í samræmi við þarfir safnaðarins á hverjum stað, svo að al-
varan, sem nú hvílir yfir mannkyninu, mætti flytja oss öll nær
honum, sem er uppspretta alls lífs, Guði vorum og drottni Jesú
Kristi, og þjóð vor sem heild verða höndluð af honum.“
Aðalfundur Hallgrímsdeildar
var settur á Hvanneyri langardagskvöldið 9. sept. Frá byrjun sóttu
liann 6 prestar af félagssvæðinu, þar á meðal öll stjórnarnefndin,
og auk þess biskupinn, 2 emerítprófastar og dr. Árni Árnason. Á
sunnud. skiftu prestarnir sér til messugerða á 4 kirkjur héraðsins:
Hvanneyri, Stafholt, Reykliolt og Lund, þar sem biskupinn mess-
aði. Á Hvanneyri var svo komið saman aftur um kvöldið til gist-
ingar, og liöfðu þá 2 prestar bæzt í liópinn. Á mánudagsmorgun
var haldið að Hesti og fundur setinn þar allan daginn. Þar bættist
við presturinn í Saurbæ.
Tveimur yngstu prestum deildarinnar hafði verið ætlað að flytja
fyririestra á fundinum, en hvorugur gat komið. Þrátt fyrir það
voru 2 merk erindi flutt á fundinum. Annað flutti dr. Árni Árna-
son í Reykholti eftir messu, og um kvöldið á Hvanneyri, um trúna
á annað líf, og var það, eins og vænta mátti, rökfast, fróðlegt og
uppbyggilegt. Hitt flutti prófastur Björn Magnússon eftir messu
á Lundi og daginn eftir á Hesti og nefndi: Langlyndi. Var það ágætt
erindi. Dr. Eiríkur Albertsson hafði framsögu um merkilegt mál,
kristilega ungmennafræðslu. Um það urðu talsverðar umræður og
beindust tillögur helzt í þá átt, að æskilegt væri, að fræðslustofn-
un eða mentastofnun til kristilegra æskulýðsáhrifa yrði komið á
fót á fornum mentasetrum, eins og l. d. Skálholti, eða merkisstöð-
um, eins og t. d. Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Þetta var annað
aðalmál fundarins. Hitt nefndist „andlegir erfiðleikar í prests-
starfinu“, og liafði þar framsögu séra Magnús Guðmundsson.
Stjórnin var öll endurkosin.
Fundinum var slitið um kvöldið, og var merkasta tillaga hans
askorun á biskup landsins að mælasl lil þess við prestana að
minnast á næsta vori 400 ára afmælis Nýja testamentisins í ís-
lenzkri þýðingu, 12. apríl, og hlutast tii um, að ljósprentuð útgáfa
Ddds Gottskálkssonar af því verði gefin öllum höfuðkirkjum
landsins.
Ásgeir Ásgeirsson.