Kirkjuritið - 01.10.1939, Blaðsíða 53
KirkjuritiÖ.
Innlendar fréttir.
339
a hann hugmyndina að lýsingu kórsins, sem er sérkennileg og
fögur, en Viggó Natanaeisson leikfimiskennari hefir unnið að
l.jósaútbúnaðinum og' málað kirkjuna að innan ásamt Hauki
Kristinssyni formanni sóknarnefndarinnar.
Sóknarnefnd Núpssóknar og kirkjubyggingarnefnd hafa
sameiginlega haft undirhúning og framkvæmd verksins með
höndum. Nefndirnar skipa: Árni Brynjólfsson bóndi, Viggó Nat-
anaelsson leikfimiskennari, Kristinn Guðlaugsson oddviti, Björn
Guðmundsson skólastjóri og frú ltakel Jónasdóttir á Núpi.
Klukkur og orgel eru úr gömlu kirkjunni.
Alls mun kirkjan hafa kostað um kr. 17.000.00. Nokkur skuld
hvílir á kirkjunni, en safnast mun hafa um kr. 11.000.00 að því
er mér var tjáð. Er Jón Oddsson útgerðarmaður stærsti gef-
andinn. Gaf hann lil kirkjunnar kr. 2.000.00. Ennfremur komu
kirkjunni gjafir frá ýmsum utansóknarmönnum, svo sem Guð-
mundi Jónssyni frá Mosdal, Guðjóni Sigurðssyni og frú Guðnýju
Gísladóttur. Og margir sóknarmenn hafa lagt sitt frain hæði með
vinnugjöfum og á annan hátt. Séra Sigtryggur mun þannig hafa
geiið kr. 1000.00 auk mikils starfs, sem hann hefir unnið, eins
°g áður er að vikið.
Daginn áður en kirkjuvígslan fór fram, var mér sagt, að eigi
væri ólíklegt, að nýr altarisdúkur kæmi í kirkjuna áður en langt
mn liði, þó að enn hefði ekki verið tilkynt neitt um það. Og hinn
'iýi altarisdúkur var i kirkjunni við vígsluna. Skýrði Kristinn
Guðlaugsson frá því að vígsluathöfninni Iokinni, að altarisdúkur
þessi væri unninn og gefinn kirkjunni af dætrum lians tveimur,
Hólnifríði og Ólöfu. Er þetta hin vandaðasta og ágætasta gjöf.
I Núpssókn munu vera um 90 manns, en um 50 gjaldendur.
Sést bezt á því, að sÖfnuðuri nn hefir unnið mikið þrekvirki
með því að koma upp kirkju, sem kostar jaí'n mikið fé. Hafa liér
verið að verki miklir áhugamenn, sem fúsir voru til þess að
'eSgja fram krafta sína og fé fyrir málefni kirkjunnar. enda ofl
komið fram, að innan Núpssóknar ríkir áhugi um kirkjuleg mál.
Vígsluathöfnin var vel sótt, þrátt fyrir óhagstætt veður, bæði
ai safnaðarfólki og úr nærliggjandi sveitum, svo og frá Þingeyri
eg Isafirði. Voru þar og viðstaddir 9 presvígðir menn auk und-
mritaðs. — Stólræðu flutti sóknarpresturinn, séra Eiríkur .1.
Eiríksson, hinn nýi prestur Dýrafjarðarþinga, og setti prófastur-
lnn í Vestur-ísafjarðarprófastsdæmi hann inn í embættið í vígslu-
guðsþjónustunni. En séra Sigtryggur annaðist altarisþjónustu,
°g var leikið undir tón hans. Hefir séra Sigtryggur sjálfur samið
l>enna undirleik af mikilli smekkvisi. Einnig voru lög, sem hann