Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 54

Kirkjuritið - 01.10.1939, Side 54
340 Innlendar fréttir. Október. hefir samiS, sungin við vígsluhátíð.ina. Með kirkjuvígslunni sá hann hugsjón, er hann lengi hefir átt, rætast, og margur mun svo vilja mæla, að liann liafi átt jmð skilið, eftir sitt mikla og ágæta starf í l)águ safnaða sinna og islenzku kirkjunnar i heild. Hinn ungi eftirmaður séra Sigtryggs er liæfileika- og áhuga- maður, sem þegar hefir unnið sér traust og álit í söfnuðum sínum og allir vænta hins bezta af. Að lokinni sjálfri vígsluathöfninni voru kirkjugestum veittar góðgjörðir og ])á fluttar margar ræður og heillaóslcir frambornar til sóknarnefndar og safnaðarins um hina nýju kirkju, sem öllum kom saman um, að væri stórfögur og vegleg og söfnuðinum til hinnar mestu sæmdar. Sif/urgeir Sigurðsson. Enn gerast íslendingasögur. Veturna 1937—1938 vann einn islenzkur alþýðumaður verk eitt „í leyndum“, eins og frelsarinn segir, að bænargerð Iærisveina sinna eigi fram að fara. Nú er því verki að fullu lokið. En í j)ví verki' felst svo mikil prýði bæði handar og hjarta, að ég finn mig til knúðan að færa ])essu sóknarbarni mínu þakkir mínar og ailra þeirra, sem þar af munu njóta í framtiðinni. Hegar ég tók við prestsskap, var ein kirkjan í prestakalli niínu svo hrörleg orðin, að hún liafði verið dæmd ómessuliæf nokkur seinustu ár á undan, og höfðu þvi guðsþjónusluhöld verið lögð niður við þá kirkju. Kirkja þessi er í Berufirði. Var nú um tvent að velja, að leggja niður Berufjarðarsókn eða byggja upp nýja kirkju. Töldu margir líklegt, að horfið yrði til þess, að kirkjan yrði Iögð niður, eingöngu vegna þess, að kirkjan átti litlar eigur, en söfnuðurinn hinsvegar svo fámennur, að ný kirkjubygging hefði orðið honum tilfinnanleg fjárhagsleg byrði. í sókninni eru sem sé aðeins 5 bæir. Lá nú þetta niðri um liríð', án þess að end- anlega yrði út gerl um, hvað gera skyldi. Vissi nú enginn neitt, þar til ég frétti af tilviljun, að Bagnar Guðmundsson sóknarnefndarformaður, sonur Guðmundar bónda Guðmundssonar í Berufirði, væri búinn að rífa gömlu kirkjuna og kominn vel á veg með að reisa nýja. Fregn þessi reyndist rétt. Ragnar fór sínar eigin Ieiðir. Hann kallaði ekki saman neinn fund til að ræða málið, en hann lét fram- kvæmdirnar koma á undan orðunum. Siðar tjáði liann mér, að þann hefði í persónulegum viðræðum komist að raun um, að sókn-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.