Kirkjuritið - 01.10.1939, Page 56
,‘542
Erlendar fréttir.
Október.
Danmerkur og var þar í mánuð. Aðalhlutverk hans í utanförinni
var að kynna sér liknarstarf og mannúðarstarf skozku kirkj-
unnar.
Guðsþjónusta
var haldin i Dómkirkjunni í Reykjavík 18. ]). m., eins og í öðr-
um höfuðborgum Norðurlanda í sambandi við þjóðhöfðingja-
fundinn í Stokkhólmi. Biskup landsins messaði.
Séra Halldór Jónsson á Reynivöllum
átti fjörutíu ára prestsskaparafmæli sunnudaginn 15. þ. m. Hann
vígðist til Reynivalla og hefir verið prestur þar öll árin.
„Hálogaland“
bók E. Berggravs er nú komin út i islenzkri þýðingu.
Erlendar fréttir.
Prestafundurinn í Hróarskeldu.
Dagana 30. ág. og 1. sept. var haldinn prestafundur Norður-
landa í Hróarskeldu. Hafa svipaðir fundir verið lialdnir áður til
skiftis í skandinavisku löndunum þriðja hvert ár, i Lundi 1924,
Hilleröd á Sjálandi 1927, Þrándheimi 1930, Helsingfors 1933, Vis-
by 1930 og nú i Hróarskeldu 1939.
Það var danska prestafélagið, sem gekst fyrir fundinum, og var
C. J. Scharling, biskup í Rípum, formaður prestafélagsins, forseti
fundarins, og stjórnaði honum með röggsemi og lipurð.
Nokkuð á 4. hundrað liöfðu boðað komu sína, en stríðshættan,
sem einmitt þessa daga vofði yfir, gerði það að verkum, að nokk-
urir hættu við fiirina, og urðu fundarmenn rétl um 300, biskupar,
dómprófastar, prófastar, prófessorar og prestar. Var þetta bæði
glæsilegur og fjörmikill hópur.
Frá Svíþjóð komu framt að hundraði fulltrúa, undir forustu
hins glæsilega Skarabiskups, Dr. G. Ljunggren. Frá Noregi voru
25, úr öllum biskupsdæmum. Var formaður þeirra Koren prestur,
en í liópnum voru m. a. Maroni biskup og Fjellbu dómprófastur.
Frá Finnlandi voru 14 einir, undir forustu Lehtonen biskups.
Ófriðarliættan hélt ýmsum af Finnunum heima. Héðan frá íslandi
var ég eini fulltrúinn, en svo smáir erum við í samanburði við
hina, að sá fulltrúafjöldi var ríflegur í samanburði við hina. Eg
mætti þarna að tilhlutun Préstafélags íslands. Langflestir voru
náttúrlega frá Danmörku. Þrír danskir biskupar sátu fundinn,