Kirkjuritið - 01.03.1940, Page 21
Kirkjuritið. Framtíðarstörf kirkjuráðsins.
99
þeim liafa verið að lögum settir þröngir starfsmöguleikar.
Hér þarf breytt fyrirkomulag. Hér þarf umráð peninga
og hér þarf starf, starf, sem aldrei getur orðið unnið af
þeim mönnum einum, sem kirkjuráðið skipa.
Ráð er fyrir því gert, að vísu, í lögum um kirkjuráð,
að ríkið leggi þvi nokkurt fé. Þar stendur þetta: „Kirkju-
ráðið hefir .... ráðstöfunarvald vfir fé þvi, sem lagt kann
að verða til frjálsrar kirkjulegrar starfsemi, eða annara
kirkjulegra þarfa (eftir nánari ákvæðum, sem fjárveit-
‘iigarvaldið setur í hvert sinn).“ Úr framkvæmdum um
framlög sliks fjár hefir lítt orðið. Stundum hefir kirkju-
ráðið að vísu fengið nokkurn hluta þess fjár, sem ríkinu
sparast við það, að prestaköll eru óveitt, en stundum alls
ekki neitt. En án fjárumráða er ekki þess að vænta, að
kirkjuráðið geti mikið gert. Sizt vil ég mæla ríkið undan
þeim skyldum, sein á því hvíla um fjárframlög til handa
þjóðkirkjunni. Hinsvegar er vitað, og að nokkuru af
reynslu, að varla er því að treysta, að ríkið leggi fram
það fé, sem með þarf. Það verður að koma annarsstaðar
R’á að nokkurum hluta a. m. k. Og því þá ekki einmitt
frá fólkinu sjálfu, þvi fólki, sem í þessu landi ann kirkju
°g kristni, og það er, sem betur fer, meiri hluti þjóðar-
innar. Það ætti ekki að vera nauðsynlegt, að þjóðin greiddi
þetta fé gegnum hendur hins opinbera, heldur heint. Það
er engu síður eðlilegt, og það yrði vinsælla.
Áður en lengra er farið í þessum athugunum, vildi ég
oieð nokkurum orðum minnast á stofnun í Svíþjóð, sem
eg tel að við gætum lært nokkuð af og tekið til fyrirmynd-
ar einmitt að því, er snertir kirkjuráðið og' aukin störf
þess í þvi, sem í lögunum er nefnt, „að stuðla að frjálsri
starfsemi til eflingar kristnilífi þjóðarinnar — mannúðar-
°g líknarstarfsemi.“ Þessi orð geta verið nákvæm lýsing
a því, hvert er ldutverk þeirrar stofnunar, sem ég hér á
V1ð, en það er Svenska Kyrkans Diakonistyrelse. — Þessi
stofnun telcur til starfa um 1910, og var aðalhvatamaður
þess Nils Lövgran. biskup af Vesterás. Um það leyti voru