Kirkjuritið - 01.03.1940, Page 23
KirkjuritiS. Framtíðarstörf kirkjuráðsins.
101
kristileg æskulýðsfélög. Hún hefir leitað samvinnu við
kennara, hjúkrunarkonur, skátahreyfinguna, barnavernd-
arnefndir, mannúðar- og líknarstofnanir.
Diakonistyrelsen hefir eigin bókaútgáfu og bóksölu, gef-
ur út kristileg blöð og tímarit, barnabækur, rit um kirkju-
leg efni o. s. frv. Allar bækur til kirkjulegra þarfa, hand-
bækur, kirkjusöngbækur, auk margs annars. Biblíuútgáfa
var hafin 1917 og sálmabókar útgáfa 1921. Er þetta nú
2. eða 3. stærsta bókaútgáfa í Svíþjóð. Ágóði er allmikill
°g gengur til annarar starfsemi að nokkuru.
Starfsmenn stofnunarinnar ferðast um landið, halda
fyrirlestra, flytja messur, blása lífi í safnaðarstarfsemi,
einkum æskulýðsstarf, og stofna kristileg æskulýðsfélög
þai’, sem þau eru ekki áður. Þá er safnað áskrifendum
að blöðum, sem út eru gefin, seldar bækur, safnað frjáls-
llm samskotum til starfseminnar o. s. frv. Þessar heim-
sóknir til safnaðanna eru taldar hafa verið mjög þýðing-
armiklar og vinsælar af fólkinu.
Þá hefir Diakonistyrelsen komið á fót Leikmannaskól-
anum í Sigtúnum og starfrækir liann. Hefi ég að nokkuru
lýst þeim skóla áður í útvarpi (sbr. Kirkjur. 1936, 7. h.).
Diakonistyrelsen hefir komið á stofn ýmsum sjóðum,
sem hún liefir umráð yfir. Einn er til þess ætlaður að
veita rentulaus lán til að byggja kirkjur, kapellur og safn-
aðai-lnis. Annar er lil þess að styrkja kristilegt æskulýðs-
starf yfirhöfuð. Þriðji er gjöf frá stóreignamanni, J. E.
Frykberg, og er til styrktar frjálsu kirkjulegu starfi yfir
böfuð. Fjórði er styrktarsjóður fátækra guðfræðinema.
Þá stóð Diakonistyrelsen fyrir fjársöfnun í minningar-
Sjöf vegna siðaskiftanna, safnað 1916—1917, og nam
s.loðurinn rúmlega 4 miljónum króna. En eigi er mér full-
kunnugt, hverir stjórna sjóðnum, né hversu honum er
varið. Þá liefir Diakonistyrelsen gengist fyrir sérstökum
fjársöfnunum vegna atvinnuleysisvandræða og til handa
fátækum. Árið 1923 var safnað 2 miljónum. Og 1931 til
unglinga, m. a. til skólavistar í lýðskólum, 152 þús. Þetta