Kirkjuritið - 01.03.1940, Blaðsíða 33
Kirkjuritið.
Guðstrúin.
111
trúarhugsjón. Allir þessir hæfileikar eiga rætur sínar í
mannlegu eðli, og það má rekja þá alla til fvrirbrigða í
sálarlífinu. Það er satt að segja engin furða, og hvernig
ætti það öðru visi að vera? Menn játa gildi vísinda, lista
og siðgæðis, ekki af dygð, heldur af nauðsyn, því að það
er ekki liægt að neita staðreyndum. En menn neita gildi
trúarinnar, af þvi að þar vantar staðreyndir á sama liátl
og um hin atriðin. Það má vel vera afsakanlegt, að ýmsir
neiti, en að nota það sem mótbáru, að guðstrúin sé sprottin
úr mannlegu eðli, falli i ljúfa löð við eðli mannsandans,
það er vægast sagt undarlegt. Það er svipað því, að ein-
hver gjörði þá kröfu, að til þess að tré yrði álitið fagurt
og fullkomið, yrði að sanna, að það væri ekki sprottið upp
af litlu og óásjálegu fræi.
Þá snúum vér oss að hinu aðalatriðinu, ósamræminu
eða samræminu á milli guðstrúar og þekkingar vorra tíma
á heiminum. Er þá rétt að drepa fyrst á tvö atriði, þ. e.
þekkingu vora á eðli efnisheimsins og takmörk skynjun-
ar vorrar. En þetta verður aðeins gjört í örfátím orðum.
Það hefir til skamms tíma verið álit vísindamanna, að
efnisheimurinn, þ. e. alt efni, lifandi og dautt, væri sam-
setl af ákveðnum efnum, frumefnunum. Frumefnin er
ekki liægt að kljúfa sundur með efnafræðilegum aðferð-
l|m, en þau ganga í samhönd sín á milli, og allur fjöld-
•nn af þeim efnum, sem vér sjáum daglega fyrir oss, eru
sambönd frumefnanna, eða svo nefnd samsett efni. Sum
efnasambönd eru einföld, eins og t. d. vatn, sem er sam-
band af vatnsefni og súrefni, en önnur eru flóknari og
sum mjög flókin, t. d. hin lífrænu efni í líkömum jurta og
dýra og þá einkum eggjahvituefnin. Menn geta klofið
efnin í sundur i smærri og smærri hluta. Minsti hluti af
efni, sem kemur fyrir út af fyrir sig, er nefndur ódeiliögn,
oiolekyl. En molekyl má aftur kljúfa í enn smærri liluta,
sem nefndir eru frumagnir eða atóm, það eru smæstu
lilutar efnisins. Minsta ódeiliögn er tvær frumagnir. En
sagan er ekki öll sögð. Nú eru vísindamenn komnir að