Kirkjuritið - 01.03.1940, Qupperneq 38
116
Árni Árnason:
Marz.
En hver er orsök rafmagnsins? Hvernig er það til orðið?
Hver verður afleiðingin af því, að menn geta ekki svar-
að þessmn spurningum? Munu menn neita gildi rafmagns-
ins eða jafnvel því, að það sé til? Þessu er óþarfi að svara.
Það eru einnig þrjú höfuðatriði i lífinu og heiminum,
sem vér getum ekki liugsað uppliaf né endi á, en það eru
tími, rúm og orsakasambandið. Vér getum ekki hugsað
oss tímann öðru vísi en eilífan, þvi að hversu langt sem vér
hugsum aftur i tímann, þá komumst vér aldrei að upp-
hafinu, og á sama hátt heldur tíminn áfram að líða, ó-
endanlega, fyrir hugsun vorri. Vér getum ekki heldur
hugsað oss takmörk rúmsins, geimsins, því að hversu
f jarlæg sem þau takmörk væru hugsuð, þá verður að liugsa
eitthvað, sem taki við þar fyrir utan. í þriðja lagi getum
vér ekki hugsað oss orsakasamhandið endanlegt. Vér
spyrjum ávalt að orsök hvers eins, og þegar hún er fundin,
þá er aftur spurt um orsök þeirrar orsakar, og svo koll
af kolli. Þessi orsakaleit er annar aðalþátturinn í allri vís-
indastarfsemi og liefir leitt til mikillar þekkingar. Hver
verður svo afleiðingin af því, að vér getum ekki liugsað
upphaf né endi á tíma, rúmi og orsakasambandinu? Hún
verður ekki sú, að vér liættum að álíta að tími og rúm
sé til, hættum að telja tímann og reikna fjarlægðir, og ekki
heldur sú, að vér hættum að leita að orsökum og álítum
orsakalögmálið i engu gildi. Nei, afleiðingin liefir orðið
sú, að farið var að rannsaka þessi efni nánar og reyna að
finna skýringu á þeim. Skýringar liafa líka fengist að
sumu leyti, þótt fæstir geti áttað sig á þeim né liafi þeirra
not. Til dæmis hefir Einstein, liinn heimsfrægi vísinda-
maður, komið fram með vísindalega skýringu á því, að
geimurinn sé ekki óendanlegur, þótt oss virðist svo. En oss
virðist hann óendanlegur vegna þess, að rúmskynjun vor
er ófullkomin. Vér skynjum aðeins þrjár víðáttur, sem má
nefna lengd, hreidd og liæð (dýpt). En samkvæmt kenn-
ingu lians má telja tímann fjórðu víðáttuna, það má reikna
þessa víðáttu út, það má reikna út liið fervíða rúm, sem