Kirkjuritið - 01.04.1940, Page 41

Kirkjuritið - 01.04.1940, Page 41
Kifkjuritið. Hið nýja testament 159 þakka, að vér vitum hvaða dag verkinu var lokið. Aftur á móti er bréf konungs, Kristjáns III., meðmælabréf með bókinni, sem prentað er framan við þýðinguna, dagsett „ottende dagen efftber alle Helgen dagh Aar etc. MDXXXIX", ]). e. 9. nóv. 1539. llafi þá verið byrjað á prentuninni eða mjög fljótt á eftir, hefir hún tekið um 5 mánuði, og er það ekki fjarri sanni. Þó hefir orðið að herða talsvert á verkinu til þess, og stafar ef til vill eitthvað af prentvillunum af þvi. Hér er ekki rúm til að skrifa, hvorki um þýðandann, sem vann þetta mikla og þarfa verk, Odd norska, son Gottskálks biskups Nikulássonar á Hólmi, þann mikla ágætis mann, né heldur um sjálfa þýðinguna, enda hefir þessa verið minst ræki- lega, bæði í útvarpi og blöðum. En vert er að geta þess hér, að á þessum merka afmælisdegi kom út dálítil bók, 400 ára minn- ingarrit um þennan viðburð. Er útgefandinn Jóhannes Sigurðs- son, en séra Sigurður Pálsson i Hraungerði skrifar eftirmála um þýðinguna og höfund hennar. En aðalefni bókarinnar næst á eftir konungsbréfinu frá 1539 og ljósprentaðri eftirmynd titilblaðsins á Oddstestamentinu, er sýnishorn af ýmsum köfl- um ])ýðingar Odds. Sýnishornin eru þessi: Matt. 6,9—13 (Faðir vor), Mark. 16,1—7; 16,14—20; Lúk. 2, 1—14; Jóh. 1,1—14; 3, 13—21; 19,17—22. 28—30; Postgb. 2, 1—8. llb; 1. Kor. 13, 1—8; Gal. 1, 1—8. 10; Formáli Odds fyrir Opinb.; Opinb. 7, 9—13a. 14b—17; 22, 16—21; og loks hinn ýtarlegi eftirmáli Odds (fullar 8 síður). Er bók þessi mjög vönduð að frágangi, letur fagurt, tveir litir í titilblaði og upphafsstofum og bókar- skraut vel gert, teiknað af Hafsteini Guðmundssyni. Hafi þeir þökk er gerðu. Útkoma Oddstestamentis er vafalaust einn af mestu viðburðum ' kristnilífi þjóðar vorrar. Þá gat almenningur fyrst lesið sjálft Nýja-testamentið alt, og verður gildi þess aldrei metið. — En auk þess er þessi bók líklega sú fyrsta, sem prentuð var á is- lenzku, og það er lika merkisatburður. M. .7. Nýtt hirðisbréf. Biskup landsins sendi fyrir páskana hirðisbréf sitt til presta og prófasta á íslandi. Bréfið er í frjálslyndum og víðsýnum anda. Leggur biskup á- herzlu á þegar í inngangi þess, að það sé ekki meiri trúfræði, heldur meiri trú, sem þjóðina vanti. Hann vill, að íslenzka kirkjan verði áfram, eins og hún hefir verið, rúmgóð og frjálslynd kirkja. Það hafi verið þjóðinni gæfa, og muni svo enn.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.