Kirkjuritið - 01.04.1940, Side 42

Kirkjuritið - 01.04.1940, Side 42
160 Nýtt hirðisbréf. Apríl. Fyrsti höfuðkafli bréfsins er um leiðarljósið, Heilaga Ritningu. I honum gjörir biskupinn mjög hreinskilningslega og einarðlega grein fyrir trúarskoðunum sínum. Biblían er honum hin mikla opinberun um Guð, og þó engan veginn jafn háleit öll eða full- komin, heldur metur hann gildi rita hennar eftir því, að hve miklu leyti þau „halda Kristi fram“, eins og Lúter komst að orði. Dýrð- armynd Krists, sonar hins lifanda Guðs, er það, sem alt á að miða við. Hver geisli Ritningarinnar, sem bendir til hans, er heilagur. Með lífi sínu og starfi, dauða og upprisu, er Jesús bæði fyrirmynd- in og frelsarinn, sem leiðir menn að föðurhjarta Guðs. En þangað á ekki að mrka neitt einstigi trúarlærdómanna. Þeir, sem eiga Jesú að leiðtoga og frelsara, eru í raun og veru eitt. Þeir sem gjöra vilja Guðs eru bræður hans og systur. I öðrum köflum bréfs síns ritar biskupinn aðallega um kristindóm í verki og kemur með ýmsar leiðbeiningar um prestlegt starf. Heita kaflarnir: Starf prestsins í kirkju. Bæn. Helgiathafnir. Starf prests- ins utan kirkju. Kristilegt starf meðal æskulýðsins. Kirkjur og kirkjugarðar. Ef til vill kann sumum að þykja óþarfi að skrifa ýtarlega um þcsskonar efni í hirðisbréfi. En í raun og veru liggur það mjög beint við, og er ekki vafi á því, að margir prestar, ekki sízt hinir yngri, muni kunna biskupi sérsatklega þakkir fyrir það. Prestsstarf hans í rúm 20 ár í stórum söfnuði við ágætan orðstír hefir aflað honum þeirrar reynslu og þekkingar, að hann getur gefið öðrum mörg og góð heilræði og gjörir það á bróðurlegan hátt. Heitasta áhugamál hans virðist vera kristilegt starf meðal æskulýðsins, því að honum er það ljóst, að börn fslands í dag eru íslenzka þjóðin á morgun. Niðurlagskafli bréfsins er um kirkjuleg áhrif á þjóðlífið. Nefnir biskup þar ýms mál, sem framundan séu, og hvetur til einingar og samtaka. En æðsta verkefnið er: „Að treysta kirkju Krists í hjörtum íslendinga allra“. Bréfið er fallegt og ástúðlegt, og mun prestum þykja vænt um þessa hlýju kveðju. Á. ,G. Kirkjuritið kemur út 10 sinnum á ári — alla mánuði ársins nema ágúst og septembermánuð — um 20 arkir alls og kostar kr. 5.00 árgangurinn. Gjalddagi 1. apríl — og 1. okt., ef menn kjósa held- ur að borga í tvennu lagi. Afgreiðslu og innheimtu annast séra P. Helgi Hjálmarsson, Hringbraut 144, sími 4776, Reykjavík.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.