Kirkjuritið - 01.10.1943, Page 15
Kirkjuritið
Prestastefnan 1943.
277
um, bæði ástvinum þeirra og ættingjum, svo og söfnuðum þeim,
þar sem þær unnu lífsstarf. sitt. Kirkjan þakkar þeim. Vér vott-
um þeim virðingu vora og rísum úr sætum með samúð og þökk
í huga.
Breytingar á starfsliði innan stéttarinnar liafa ekki orðið
miklar á synódusárinu.
Séra Eiríkur Helgason í Bjarnanesi sagði af sér embætti á
síðastliðnu sumri og dvaldi bér í Reykjavík sl. vetur við skrif-
stofustörf. En meginþorri safnaðarins óskaði þess, að bann sækti
um prestakallið aftur, og varð bann við þeim óskum. Hefir
liann fengið veitingu fyrir Bjarnanesprestakalli frá fardögum i
ár, samkvæmt lögmætri kosningu safnaðarins.
Séra Jens Benediktsson, er var settur prestur í Hvammspresta-
kalli í Laxárdal á sl. ári og tók prestvígslu 23. ágúst, sagði em-
bættinu lausu eftir stutta stund og fékk lausn frá 1. nóv. s. á.
Vonandi tekur bann aftur embætti innan kirkjunnar áður en
langt um líður.
Eftir fráfall séra Páls Hjaltalíns prófasts i Norður-Þingeyjar-
prófastsdæmi fór fram prófastskosning og var að henni lokinni
skipaður prófastur séra Þórður Oddgeirsson að Sauðanesi, frá
1. jan. 1942 að telja.
Eftir lát séra Gísla Skúlasonar prófasts á Eyrarbakka, var séra
Guðmundur Einarsson á Mosfelli hinn 29. ág. f. á. settur prófast-
ur í Árnesprófastsdæmi.
Ennfremur var séra Haraldur Jónasson á Kolfreyjustað settur
prófastur í S.-Múlaprófastsdæmi i stað séra Stefáns sál. Björns-
sonar.
Á synódusárinu bættust kirkjunni fimm nýir starfsmenn í
prestastétt. Voru þeir vígðir til prestsþjónustu í Dómkirkjunni
i Reykjavík, sunnudaginn 23. ág. 1942. Guðfræðiskandídatar þeir,
sem vígðir voru þann dag eru þessir:
1. Erlendur Sigmundsson, er vígðist að Dvergasteinspresta-
kalls i Seyðisfirði í Suður-Múlaprófastsdæmi. Séra Erlendur er
fæddur í Gröf á Höfðaströnd í Skagafjarðarsýslu 5. nóv. 1910.
Foreldrar hans eru Sigmundur Sigtryggsson, bóndi og kona
hans Margrét Erlendsdóttir. Hann útskrifaðist úr Menntaskól-
anum á Akureyri 1938. Tafðist liann frá námi i guðfræðideild
Háskóla íslands einn vetur vegna lasleika, en lauk þar embætt-