Kirkjuritið - 01.10.1943, Síða 36

Kirkjuritið - 01.10.1943, Síða 36
298 Kaj Munk: Október að hugsa um hann og heina vonum sínum eitthvað annað? Ég játa hreinskilnislega, að ég skil það ekki, að Jesús skuli ekki vitja æskuvinar síns í fangelsinu, og að hann virðist ekki á neinn hátt liafa tekið í taumana. En ég er sízt kominn til þess að gagnrýna gjörðir Ivrists.Það hlýt- ur að liafa verið eitthvað, sem Jesús vissi, að Jóhannes varð að reyna einn? Er það ekki eðli sannleikans, að hann lætur og á að láta manninn mjög einmana um sinn? Aftur á móti fagna ég allslmg'ar orðum Jesú við mann- fjöldann um spámanninn fangelsaða og fallna. Það var í rauninni liart, að Jóhannes, sem liafði sjálfur vígt Jesú til köllunarstarfs hans fyrir allan heiminn og greitt honum veginn, skyldi nú í opinberri deilu varpa framan í liann annari eins spurningu. Það var full ástæða fyrir Jesú til að fallast bæði mjög um þetta og verða sár og gramur. Og mannfjöldinn umhverfis var auðsjáanlega albúinn þess að láta hetjuna sína gömlu þoka fyrir hin- um nýja manni líðandi stundar. Heyrið, hvað þeir eru að tauta um liann fyrir munni sér? Þessu liefðum við raunar aldrei trúað á Jóliannes. En sá vingull. Óáreið- anlegur eins og bylgjan, að ekki sé nefndur franskur for- ingi. Heldur hrökk nú trú lians skammt, að hún skyldi hregðast, þegar mest á reið. Já, þeir, sem engu voga, eru æfinlega óánægðir, þegar þeir, sem einhverju voga, endast ekki. Hlýðið á, hversu karlmannlega og einarðlega Jesús ver vin sinn. Hann metur ekki mennina eftir því, hvort þeir bera sig hetjulega eða ekki. Hinsvegar gengur hann fram fyrir skjöldu fyrir hann með öllum sínum unga myndugleika: Þótt hann sé lamaður nú, skuluð þið ekki gleyma því, er liann var og vann, meðan afl lians var óskert. Þá svignaði liann ekki eins og sef fyrir vindi né bar kápuna á báðum öxlum. Farið í Ríkisdaginn, ef

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.