Kirkjuritið - 01.10.1943, Blaðsíða 40
302
Októbcr
Aðalfundur Hallgrímsdeildar
var haldinn á Akranesi 8.—9. okt. ASalmál hans var: Kristilegt
uppeldi æskulýSsins.
Kristilegt mót. ,
var haldifi aS Akranesi við niikla aSsókn 19.—21. júni.
Minning Jóns biskups Arasonar.
Sunnudaginn 15. ágúst var haldin guðsþjónusta að Hólum í
Hjaltadal til minningar um Jón biskup Arason. Sigurgeir Sig-
urðsson biskup prédikaði, en séra Friðrik J. Rafnar vígslubisk-
up þjónaði fyrir altari. Að lokinni guðsþjónustu flutti Brynleifur
Tobíasson menntaskólakennari erindi um Jón biskup. Áformað
var að reisa Jóni biskupi og sonum hans minnisvarða.
Prestskosningar.
Séra Þorgeir Jónsson hefir verið kosinn prestur i Hólma-
prestakalli í S.-Múlaprófastsdæmi, séra Eiríkur Helgason i
Bjarnanesprestakalli i A.-Skaftafellsprófastsdæmi. Gunnar Gísla-
son cand. theol. í Glaumbæjarprestakalli i Skagafjarðarprófasts-
dæmi, Ingólfur Ástmarsson í Staðarprestakalli í Strandaprófasts-
dæmi og séra Guðmundur Helgason í Nesprestakalli í Norðfirði.
Séra Þorsteinn Björnsson
frá Árnesi hefir verið settur prestur í Sandaprestakalli í V.-
ísafjarðarprófastsdæmi.
Séra Eiríkur J. Eiríksson
á Núpi liefir verið endurkosinn formaður Sambands Ungmenna-
fjelaganna.
Nýir prófastar.
Nýlega liafa þeir verið skipaðir prófastar séra Guðmundur
Einarsson í Árnesprófastsdæmi og séra Haraldur Jónasson i
Suður-Múlaprófastsdæmi.
Hálfrar aldar kirknaafmæli.
Minnzt hefir verið ekki alls fyrir löngu hálfrar aldar afmælis
þessara kirkna: Brekkukirkju i Mjóafirði, Torfastaðakirkju og
Kálfatjarnarkirkju. Hefir Kirkjuritinu borizt minningargrein um
Brekkukirkju, og mun hún birt siðar.
Embættispróf í guðfræði.
Embættisprófi við guðfræðideild Háskólans luku 29. mai sið-
astl. þeir