Kirkjuritið - 01.10.1958, Page 25

Kirkjuritið - 01.10.1958, Page 25
Nokkrar sagnir um Saurbœjarpresta „Hver einn bær á sína sögu, sigurljóS og raunabögu.“ Þar sem ýmsar sagnir eru til um séra Hallgrim Pétursson á prenti og því ýmsum kunnar, sleppi ég að geta þeirra hér, enda sumar þjóð- sagnakenndar. Er séra Hallgrímur var orðinn sjúkur, tók hann aðstoðarprest, Torfa Jónsson að nafni, en hann andaðist eftir 1 ár, vorið 1668, 45 ára að aldri. Var hann sonur séra Jóns Böðvarssonar i Reykholti, en hafði áður í 5 ár verið kennari við Skálholtsskóla. Næsti prestur í Saurbæ var Hannes Bjömsson, er kom þangað árið 1668. Var hann fyrsta árið aðstoðarprestur séra Hallgrims, er lét af emb- ætti árið 1669 vegna veikinda. Var séra Hannes prestur i Saurbæ í 29 ár. Sleppti brauðinu við son sinn árið 1697 og dó þar 1704, 73 ára að aldri. Sonur séra Hannesar og eftirmaður var Torfi Hannesson. Kom þangað sem prestur 1692 og var i 5 ár aðstoðarprestur föður síns. Var alls prest- ur í Saurbæ í 36 ár. Drukknaði í Leirá 8. febr. 1728, 58 ára að aldri. Kona hans hét Elin Jónsdóttir, prests á Staðarhrauni Guðmundssonar. Þeir feðgar munu hafa verið efnamenn, að minnsta kosti er séra Hannes talinn „vel efnaður maður, stórhuga og frændríkur". Hafa þeir feðgar þannig haldið staðinn eða prestakallið í 60 ár. Kjórði prestur frá séra Hallgrími var séra Þorvarður Auðunsson. Kom til staðarins árið 1729 og var þar í 46 ár. Faðir hans var Auðun, prestur á Borg á Mýrum (d. 1707) Benediktsson, prests á Hesti (d. 1724) Péturs- sonar, Teitssonar prests í Lundi, Péturssonar. Móðir séra Auðuns var Þóra Þorvarðardóttir í Bæ, Magnússonar á Suður-Reykjum, Þorvarðs- sonar sama staðar Þórólfssonar, Eyjólfssonar á Hjalla i ölfusi Jónssonar. Séra Þorvarður var nokkra hríð heyrari (kennari) í Skálholtsskóla, vigðist 1729 prestur til Saurbæjar á Hvalfjarðarströnd og andaðist þar l.mai 1775, 70 ára. Aðstoðarprestur hans siðasta árið var Bjöm Þorgríms- son, er síðast var prestur að Setbergi i Eyrarsveit. Séra Þorvarður var tvíkvæntur, og var fyrri kona hans Sigríður Magnúsdóttir Sigurðssonar, en siðari kona hans var Valgerður Pálsdóttir, systir Gunnars prófasts í Hjarðarholti og Bjarna landlæknis, og átti hann engin börn með þeim.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.