Kirkjuritið - 01.06.1960, Blaðsíða 17

Kirkjuritið - 01.06.1960, Blaðsíða 17
Pistlar. Lykkjufall. í lögum um sóknargjöld, sem sett voru árið 1909, voru tvenn skynsamleg ákvæði um hækkun sóknargjalda, ef þörf krefði. Um hið fyrra segir svo í Kirkjurétti Einars Arnórssonar: nÞar sem söfnuður hefur tekið að sér fjárhald kirkju, þar ber sóknarnefnd að sjá um, að nægilegt fé komi inn til viðhalds °g þarfa kirkjunnar yfir höfuð. Ef ekki nægja hinar lögmæltu tekjur kirkjunnar, kr. 0,75, þá er það skylda sóknarnefndar, að kalla saman safnaðarfund og freista að fá samþykki hans til að auka kirkjugjaldið og heimila niðurjöfnun þess um eitt ar eða ákveðið árabil. En auk samþykkis safnaðarfundar þarf einnig samþykki héraðsfundar til hækkunar kirkjugjalds." Um hið síðara segir: ,,Nú nægir hið lögmælta kirkjugjald ekki ftieð hækkun þeirri, sem gerð hefur verið samkvæmt áðursögðu, °g er sóknarnefnd þá heimilt að jafna niður því, sem á vant- ar> á alla gjaldskylda safnaðarlimi eftir ástæðum.11 Hvort tveggja virðast eðlileg og nauðsynleg ákvæði. Kirkj- an er, eins og vitanlegt er, ákveðinn félagsskapur þeirra manna, sem í honum vilja vera og hlíta formi hans og fyrirmælum. Menn ganga í hana og segja sig úr henni að eigin vild — hve- naer sem þeim þóknast. Hún hefur mikla fjárþörf og ærið mis- jafna eftir því, hvaða framkvæmdir hún hefur með höndum. T. d. er fjárnauðsyn þeirra safnaða, sem búa við góð kirkju- hús og vel viðhaldin, ólíkt minni en hinna, sem ráðast verða 1 nýsmíði kirkna af litlum sem engum efnum. Ætti það að hggja hverjum manni í augum uppi. Og að sjálfsögðu eru og ýmissar framkvæmdir, sem einn söfnuður ræðst í, en ekki annar, ekki sízt nú á dögum. T. d. margbreytilegt barna- og Unglingastarf, útgáfa safnaðarblaða og annað slíkt. Þess vegna verður ekki efað, að söfnuðunum er óhjákvæmilegt að geta hækkað kirkjugjöldin um lengri eða skemmri tíma — og hví skyldi þeim vera settar óeðlilegar, hvað þá óhæfilega þröng-

x

Kirkjuritið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.