Kirkjuritið - 01.06.1960, Blaðsíða 37
KIRKJURITIÐ
275
illar sæmdar, enda stendur hann saman eins og einn maður
að því að hlúa að henni, svo að hún er áreiðanlega með glæsi-
legustu guðshúsum landsins í sveit.
Kirkjan rís hátt, blasir vel við á hólnum, þar sem hún
stendur.
Ég á enga ósk heitari henni til handa, en hún rísi ávallt
hátt í hugum barna sinna. Og vísi hér eftir sem hingað til
öllum börnum sínum á veginn, sem liggur öllum öðrum ofar,
svo að í hjörtum þeirra svelli lof og þakkargjörðin til Guðs.
Þess vegna:
„Lyftum í hæðir með heilögum söng
hjörtum úr veraldar umsvifaþröng.“
Soli Deo Gloria.
Guði einum dýrðin.
Magnús Guðjónsson.
Menn kenna fólki allt annað en að vera réttlátt. — Rascal.
Það er heilbrigð hugsun að setja við og við spurningarmerki við
Pað, sem menn hafa lengi talið sjálfgefið. — Bertrand Russel.
Það hefur enginn svo mikið að gera, að hann geti ekki í hjarta
sinu talað við Guð. — Lúthei-.
Guð á himnum er sá eini, sem aldrei þreytist á að hlusta á menn-
ma. — Seren Kierkegaard.
Ef þjg íangar ekki til að verða betri, hættir þú bráðlega að vera
goður. — Bernhard frá Clairvaux.
Þú getur ekki unnið heiminum betur en með því að vera góður.
' Walter Scott.
Leitaðu sannleikans og þótt það leiði þig að dyrum Vítis — þá
oi'ðu. —• Benjamin Hojer.