Kirkjuritið - 01.06.1960, Síða 39
KIRKJURITIÐ
277
ana tók hann í hreysið til sín, og af einum þeirra smitaðist
hann af ólæknandi augnsjúkdómi. Svo var það alla ævina, að
hann sparaði aldrei sjálfan sig og fylgdi því fram, sem hann
taldi sanna'st og bezt — hver, sem í hlut átti og hvað sem það
kostaði.
Kagava hóf nú víðtæk og mikilvæg stjórnmálaafskipti, þótt
ekki gerðist hann þingmaður. Hann varð fyrsti kristni verka-
^ýðsforingi í Japan og kom ótrúlega miklum umbótum til leið-
ar næstu árin. Meðal annars því, að illræmdustu fátækrahverfi
stórborganna voru rifin og byggð nýtízku verkamannahverfi,
Þar sem sól og blær lék um unga og gamla og búið var við
ftiannsæmandi kjör. Hans verk var það framar allra annarra,
að karlmenn fengu almennan kosningarétt 1925. Þeim leyfðist
hka að stofna verkamannafélög, sem umsköpuðu kjör þeirra.
há lét Kagava sig eins skipta mál bændastéttarinnar, enda átti
hún að sumu leyti einna bágast. Mikill hluti bændanna voru
ÍGiguliðar, sem skyldir voru að láta 55—70% af uppskerunni
UPP í afgjaldið. Skuldavextir voru 20—40%. Árlega flosnaði
hka fjöldi þeirra upp og flutti til borganna — flestir í fátækra-
hverfin.
Bændaflokkur var stofnaður 1921 fyrir forgöngu Kagava.
hlann hóf útgáfu timarits: Moldin og frelsið. Nýir og betri
tímar runnu upp — þótt sumt misheppnaðist og annað næð-
lst ekki — eins og gengur.
Þá var og Kagava brautryðjandi samvinnufélagsskaparins
1 Japan. Markmið hans var sannarlegt réttlæti, jöfnuður og
hfæðralag. Hann var enginn byltingarmaður — en umbyltinga-
maður á hugarakrinum var hann frábær.
^est spillti það fyrir honum á stjórnmálasviðinu, að hann
Var alla ævina eldheitur friðarsinni. Það átti illa við hernaðar-
smnana, sem með völdin fóru. Einkum varð það honum dýr-
keypt á styrjaldarárunum fyrri og síðari. Þá sat hann lang-
timum í fangelsi — maður, sem engum vildi mein gera — en
uskaði öllum góðs.
Sú var bót í máli, að ósjaldan var Kagava kvaddur til ráða,
Pegar mest á reyndi, t. d. eftir jarðskjálftana miklu, sem lögðu
Urri % hluta Tokio í rústir 1923, og á kreppuárunum um og
eftir 1930.
Ungur varð Kagava einn af kunnustu rithöfundum Japana.