Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.04.1965, Qupperneq 38

Kirkjuritið - 01.04.1965, Qupperneq 38
228 KIKKJUltlTIl) — Margir láta sér nægja að aðhyllast einliverja alltof fast- mótaða skýringu á guðshugtakinu. Ég get vel látið mér lynda að menn kalli samvizkuna rödd Guðs. En ]iar að auki felst Guð dýpst í oss og óendanleikanum. Hver rúmar hann? Menn liafa viljað hneppa Guð í nokkrar trúarjátningar, en ég liygg að það sé óframkvæmanlegt. — Hvernig skýrið þér sjálfur Guðsliugtakið? -— Getur kirkjan fallist á þá skoðun að almætti Guðs sé mannlegt? Ég á við að við getum aðeins hugsað okkur Guð sem mann. Guð er m. a. náungi okkar. Guð er í inanninuni. Er ekki elskan í því fólgin að láta sér annt hver um annan? Kannske að ég geti orðað þetta svona: Guðshugtakið er sam- safn allrar þeirrar gæzkw, sem fyrirfinnst í vondri veröld. Mér er aldrei til efs að sú gæzka er máttur. LokaorS Svo sem áður er getið, eru Jiessi sýnisliorn aðeins lítil spegil- mynd af sjónarmiðum liöfundanna, þótt reynt sé að hita sér- einkenni og sérskoðanir þeirra koma sem skýrast fram. Ekki þarf að benda á einliæfnislega þröngsýni sumra og sjálfbyrginslega róttækni. Sérstök ástæða er að geta þess að í hópnum eru þessir guð- fræðingar: Gerhard Rasmussen, er lengi var prestur. Síðast 20 ár í Kaup- inannaliöfn. Henrik Stangerup, sem telur að guðfræðinám hafi góða kosti, en kveðst ráðinn í að láta ekki vígjast. Loks Preben Thomsen. Hann lét nýlega af prestsemhælti, sem hann gegndi við Heilagsandakirkju við „Strikið“ í Höfn. Gaman væri að einhverjir vildu í stuttu máli senda ritinu at- hugasemdir eða hugleiðingar út af því, sem liér lxefur horið a góma. Annað hvort í hréfs- eða greinarformi, en í sem styzlu máli. Hef ég oftar en einu sinni vakið máls á, að slík bréf þykja forvitnileg erlendis. Hér er því miður of lítið að því gert að ræða almenn mál frá ýmsum liliðum. Er það þó jafnan gagnlegt og oft nauðsynlegt. — G.A.

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.