Kirkjuritið - 01.04.1965, Blaðsíða 40
Guðrún GuðmundMþttir frá Melgerði:
Þú, Ijúfi Jesú, ert Ijósið mitt
ég lofa heilaga nafnið þitt,
er haustský vonanna vorblóm fól
þú veittir barninu þínu skjól.
Er ég var smábarn, þú varst mér hjá
og veittir alls staðar birtu að sjá,
þú hverja stund gafst þinn kærleik mér,
ég kaus af hjarta að fylgja þér.
Þú ert mér samur á elli stnnd,
þú ert minn styrkur þá daprast lund,
er þreyttur hugur minn þráir ró
um þig að hugsa er sæla nóg.
Þú, Drottinn Jesú, mitt líf og Ijós,
þú lífs mins heilaga Saronsrós,
ég elska lífið, ég elska þig,
þií annast, blessar og leiðir mig.
Út á vorin, þá er mín þrá,
þá ert þú Jesús, mér sjálfur hjá,
þú blessar smávöxnu blómin mín,
mér birtist alstaðar náðin þín.