Kirkjuritið - 01.02.1966, Qupperneq 30

Kirkjuritið - 01.02.1966, Qupperneq 30
Ágúst Sigur&sson: Elska ræða við prestsvígslu í Hóladómkirkju 20 júní 1965 Textinn: 1. Jóli. 4. 16—21. Af þessnm orðvmi Jóhannesar megum vér draga þrefaldau lærdóm. I fyrsta lagi um elsku Gu&s. í annan stað áhrif breytn■ innar og enn eSli og samrœmi elsku og breytni. Guð er kærleikurinn sagði texti vor. Þannig er lýst eSli Guðs. gjafarans mikla, sem elskar mennina að fyrra bragði og sýnir svo mikinn kærleika, að vér megum kallast Guðs börn. Kær' leikurinn er frá Guði kominn og hver, sem elskar, er af Guði fæddur, því að liann er uppspretta og orsök alls kærleika. Ein' kenni guðs-samfélags vors er kærleikurinn til náungans. En vér elskum ekki með orði og ekki lieldur með tungu, heldur í verki og sannleika. t elskunni hver til annars, í bróðurelskunni, sýníi mennirnir stöðugleika sinn í Guði. Þannig fullkomnast kær- leikur trúarinnar, að vér tökum dæmi Krists og miðlum öðruni því góða, eftir því sem oss veitist gæfa til. Græðum, ef hönd vor getur líknað. Miskunnum, ef lmgsun vor greinir mildina gegnum hið ytra bvrði. Öll elskufull hugsun oji góð verk vor eru því háð hvort Guð gefur oss liæfileikann til bróðurlegrar umhyggju og réttsýni. Hinir lærðu hafa verið að predika um kærleikann og skáld- in að kveða um hann og ljóða. Engin kærleiksboðun og ekkert ljóð um elskuna tekur fram hinum forkveðna óð í 1. Korintu- hréfi, sem æ er nefnt, er lengst er hér til jafnað. Jóhannes er nefndur postuli kærleikans, Páll postuli trúarinnar. Því fvndist

x

Kirkjuritið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.