Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1970, Síða 22

Kirkjuritið - 01.11.1970, Síða 22
KIRKJURITIÐ 404 unnt að gefa öðrum sé barn. Það er gefið af lífinu sjálfu eða Guði á þann hátt, að aldrei verður urn breytt. Enginn faðir getur getið annars manns bam og engin móðir fætt af sér bam annarrar konu. Það er því algjörlega rangt, sem ættleiðingarlög leyfa og jafnvel ætlast til, að liið rétta faðerni og móðemi týnist, og sé ef til vill livergi skráð. Enda væri þá ekkert eðlilegra en að systkini giftust, þar eð þau vissu ekkert um að þau væm systkini. Ennfremur væri aldrei bægt að treysta ættartölum framar, þar sem falsa má ætterni löguni samkvæmt. Svo eðlilegt og fallegt sem það er að ala upp ann- arra böm undir vissum kringumstæðum, ganga þeim í foreldra- stað og veita þeim lögum samkvæmt réttindi til arfs og gera þau aðstöðujöfn eigin börnum, svo er hin f jarstæðan mikil, að ætla sér að grípa fram í fyrir lífinu sjálfu og ræna rétti þess svo, sem ættleiðingarreglur virðast nú ætlast til, að bægt sé að gera. Barn verður alltaf barn foreldra sinna, bvað sem öll lög veita því af réttindum þjóðfélagslega til fósturforeldra.“ Ég er sammála séra Árelíusi um þetta. Virðist líka eðlilegt að leyfa fósturforeldrum, að láta barnið kenna sig við þau, þóW það og aðrir viti samtímis um hina réttu foreldra. Það ætti ekki að draga úr ást og umhyggju fósturforeldranna, eða þvl að þau arfleyddu barnið. Mér liefur alltaf fundizt lögin, sem heimila mæðrum feðra ekki börn sín, vera óverjandi. Sem betur fer er tiltölu' lega sjaldan til þeirra gripið. Samt of oft. 1 fyrsta lagi em þau óþolandi fyrir barnið. Hvert barn a skýlausan rétt til að vita um foreldra sína. Rangfeðmn verðiit ekki með öllu útilokuð, en þó ill sé, sakar bún barnið ólíkt minna. Það veit oftast ekki um hana, þótt það kunni stundn111 að gruna sannleikann. En vitund þess, að vera svikinn uni að geta kennt sig v1^ nokkurn föður hlýtur að valda margs konar sálarkvölum ®vl' langt og draga illan dilk á eftir sér. M. a. ef til vill systkiöí*' giftingar, aðkast í skólum og víðar, minnimáttarkennd blygðunarsemi. Móðurrétturinn er einn réttmætasti og ríkasti rétturinn se® til er. En liann byggist fyrst og fremst á því, að hagur barnsins og liamingja sé bezt tryggð með því að helga liann. Tilætlun111 á

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.