Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.11.1970, Side 30

Kirkjuritið - 01.11.1970, Side 30
412 KIKKJUIUTIÐ virl til samanburðar við annan feril ólíkan, þó að sá sé ágælur að allra dómi. Báðir liafa jieir sr. Lárus og sr. Yngvi Þórir farið lialloka í prestskosningum. Ekki varpar það neinni rýrð á þá. En jiað er sérleg rökvísi að ætla sér að nota sr. Láras Halldórsson lil þess að sanna, að prestskosningar séu hið æskilegasta fyrir- komulag í sambandi við veitingu prestakalla. Ég læt lijá líða að rifja upp, live oft sr. Lárus hefur sótt um prestakall og ekki náð kosningu. Ég endurtek, að það er á engan liátt honum til vansæmdar. En dæmi hans eitt út af fyrir sig mætti nægja flestum til þess að draga réttmæti kosninganna í efa og álykta, að útkoman af þeim sé næsta óeðlileg og ranglát í mörgum tilvikum. Ef við sr. Gunnar Árnason erum sammála um liæfileika og mannkosti sr. Lárusar, að hann sé ágætlega fallinn til prestsskapar í öllu tilliti — jjað er ákveðið ntín skoðun, sem ég hef livorki fyrr né síðar farið dult með •— hvernig stendur þá á ]>ví, að liann er ekki prestur, að liann liefur livað eftir annað beðið lægra hlut í kosningum og hefur |)ó haft fyllstu tækifæri til þess að kynna sig? Það er til einskis að leita eftir órekjanlegum orsökum þessarar stað- reyndar. En hún er nokkur upplýsing um það, hvernig kerfið verkar. Og það er ógætileg fljótfæmi að draga dæmi sr. Lárus- ar fram í jiví skyni að styðja við úreltum kosningalögum, ])V1 dæmið bendir í gagnstæða átt. Það er hin órækasta sönnun þess, að sii aðferð, sem Iiér er í gildi um skipun prestakalla, er röng, ranglát, kirkjunni til lmekkis, stéttinni til tjóns- Enda er þetta mjög svo samdóma álit þorrans af félögum J Prestafélagi Islands og í sívaxandi mæli brennandi mál. Kirkjan hefur nú fengið fáeinar prestsstöður, sem eru ekki bundnar við prestaköll, heldur sérsvið, og skipanir í þær erit ekki háðar kosningum. Þær stöður era fáar og miðaðar við sérhæfingu. Auk jiess eru tvær þeirra, starf æskulýðsfulltrua og starfið í Kaupmannahöfn, bundnar því ákvæði í lögum, að J þær skuli skipað til þriggja ára í senn. Þessi embætti geta með 'engu móti leiðrétt það, sem miður fer af völdum gildand1 laga um veitingu prestakalla og bætt úr því ranglæti, sel11 af þeim stafar. Því fargi verður að létta af stétt og kirkju- Og prestar munu ekki láta hlekkingar og moldviðri villa nnJ fyrir sér í viðhorfi til þess máls.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.