Kirkjuritið - 01.12.1970, Page 35

Kirkjuritið - 01.12.1970, Page 35
KIItKJURlTID 465 Um þörf þeirra verðiur ekki efast. Sjónvarpið sýndi nýlega pílagrímsför Gyðinga til fangabúð- anna og eyðingarstöðvanna í Belsen. Margt var þar hrollvekjandi, sumt liörmulegra en orð ná yfir: pyntingar, lifandi beinagrindur, líkaaska, barnamorð. Hvað sárast og skelfilegast var sú vitund og vitneskja, að þetta víti og þessi brjálæðiseyðing var fyrirskipuð og framin nieð köldu blóði af venjulegum borgurum. Án opinberra andmæla eða nokkurra afskipta verabllegra °g andlegra lieimsstjórnarmanna. Með réttu var spurt: Hvar var kirkjan? — Sjálfur páfinn lét þetta þegjandi viðgangast, — bvað þá meginliluti kirkju- liöfðingja mótmælenda. En spumingin: Hvar er kirkjan? er ekki liljóðnuð. Hún heyrist m. a. víða þar sem kynþáttamisréttið í Suður- Áfríku og framferði valdliafanna í Rodesíu, nýlendustjórn Eortúgala og ýmiss konar afmenning ber á góma. Það bryddir stundum á henni liér á landi eins og annars staðar. Þá er tíðast bent á líknarstörf og ölmusugjafir, og æskulýðs- starf, sem allt er góðra gjalda vert. En allt þetta nær til ærið Eírra og em rétt stvmdarbætur. Vér verðum að opna augun! Vér verðum að gera oss ljóst hvað bagar að. Þjóðskipulagið — livert sem það er, er ekki mesti meinvald- Ul‘inn. Kristur liafði rétt fyrir sér í því, að liugarfarið ræður mestu um gjörðir mannanna. Þar er undirrót framferðis valdhafanna, auðsveipni leppanna, klækinda bragðarefanna og losta kvalar- anna. Einnig frjálsliugans, friðarboðans og mannkærleikans. Það er bugarstefna og skilningur valdhafanna sem veldur því að ^eiru er sóað til hergagnasiníða og í uppfinningar eiturefna °g gereyðingartækja, en lagt er að mörkum til útrýmingar fátækrahverfa og til vegruðnings réttlætinu og bræðralaginu. Uótt kristindómsþekkingin liafi ef til vill sjaldan verið upp a færri fiska almennt talað í vestrænum heimi en nú í dag, 'lta þó ungir og gamlir að það var svo fjarlægt Kristi að halda l)ví fram, að fjármálin væm mál málanna, að liann sagði: Hvað stoðar það manninn að eignast allan lieiminn en fyrir- 30

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.