Kirkjuritið - 01.12.1970, Side 43
KIRKJURITIÐ
473
safni er varðveittur skírnarfontur sem einnig var gjöf séra
Sveins til Holtskirkju. Fonturinn er frá árinu 1594, þýzkur
að uppruna og ber áletrun á lágþýzku. A fatinu í skírnarfont-
'num er mynd af syndafallinu.
Aðrir munir tveir em í þjóðminjasafninu, komnir úr Holts-
kirkju; Paxspjald eitt frá katólskum sið og forkunnarfögur
lágmynd af móður Önnu og Maríu með Jesúbarnið. Þykir liún
mikil gersemi og hefur dr. Kristján Eldjárn ritað um liana í
bók sinni í „100 ár í Þjóðminjasafni“.
Þá er í kirkjunni koparljósahjálmur auk margra annarra
binna ágætustu muna svo sem liátíðahökull nýr úr gullbrokade.
Orgelbarmonium var keypt nýtt á þessu ári.
Góðar myndir eru þar varðveittar af prestum þeim, sem
þar liafa þjónað, að undanskildum þjónandi presti, séra Lárusi
b. Guðmundssyni. En þeir eru: séra Stefán Stepliensen frá
1855—1884, séra Janus Jónsson frá 1884—1908, séra Páll Stepli-
ensen frá 1908—1929, séra Jón Ólafsson frá 1929—1963.
Að lokum skal þess getið að Flateyrarsókn var skipt úr
Holtssókn 1936, er kirkja reis á Flateyri.
Margt mætra manna og kvenna liafa lagt hönd á plóginn í
safnaðarstarfinu. Núverandi sóknarnefnd skipa: Giiðmundur
lngi Kristjánsson, Kirkjubóli, sem jafnframt er meðbjálpari
°g hringjari, Brynjólfur Árnason Vöðlum og Jóhannes Krist-
jansson Hjarðardal. Safnaðarfulltrúi er Ilalldór Kristjánsson,
Kirkjubóli.
Séra Stefán Eggertsson færði Holtssókn árnaðaróskir í tilefni
Þinamótanna, en séra Lárus Þ. Guðmundsson þakkaði gestum
boniuna.
Góðar gjafir bárust, m. a. 10 þúsund krónur frá Ólafi Hjálm-
arssyni og Ragnlieiði Guðmundsdóttur frá Mosvöllum og börn-
lmi þeirra, en þau hjónin voru gift þann sama dag fyrir 40
árum í Holtskirkju.
i'á bárust og 10 þúsund krónur frá Stefáni Pálssyni og
Guðrúnu Össurardóttur frá Kirkjubóli í Korpudal og börnum
þeirra.
Hátíðin fór hið bezta fram í livívetna. Fór það saman, virðu-
leiki og gleði ungra sem aldinna. Er ekki að efa, að slíkir
i'átíðisdagar eru mjög til eflingar kirkjulegu starfi, þar sem
þeim verður við komið hverju sinni.