Kirkjuritið - 01.06.1975, Blaðsíða 16
prestur á vegum Kristilegs stúdenta-
félags og Kristilegra skólasamtaka og
sjá félög þessi um allan kostnað
vegna þessarar þjónustu.
Sr. Jón er fæddur í Reykjavík 13.
jan. 1947, sonur hjónanna Ingibjargar
Þorsteinsdóttur og Hróbjarts Arna-
sonar, iðnrekanda. Hann varð stúdent
1969 og kandidat 1973. Var næsta vet-
ur í Osló við framhaldsnám. Hann er
kvæntur Ingu Þóru Geirlaugsdóttur.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir vígðist 29.
sept., settur prestur í Staðarpresta-
kalli í Súgandafirði frá 1. okt., fyrsta
konan, sem hlýtur prestsvígslu á ís-
landi.
Hún er fædd í Reykjavík 21. apríl
1937. Foreldrar eru hjónin Inga Árna-
dóttir og Vilhjálmur Þ. Gislason, út-
varpsstjóri. Hún varð stúdent 1956,
kandidat 1962. Samhliða námi og síð-
ar starfaði hún í kvenlögreglunni og
í Hjálpræðishernum. Næstliðin ár
hafði hún dvalizt í Strassborg, þar
sem maður hennar, Þórður Örn Sig-
urðsson, menntaskólakennari, hefur
starfað hjá Evrópuráðinu.
Kristján Valur Ingólfsson vígðist
um leið, 29. sept., settur í Raufarhafn-
arprestakalli frá 1. okt., skipaður þar
1. maí þ. á.
Sr. Kristján Valur fæddist 28. okt.
1947 að Dal í Grýtubakkahreppi. For-
eldrar hans eru hjónin Hólmfríður
Björnsdóttir og Ingólfur Benediktsson,
málarameistari. Hann varð stúdent
1968, kandidat 1974. Kona hans er
Margrét Bóasdóttir.
Jón Þorsteinsson var og vígður í
sama sinn, 29. sept., settur í Grundar-
fjarðarprestakalli, Snæf., frá 1. okt.,
verður skipaður þar frá 1. júlí
Sr. Jón fæddist 19. febr. 1946
eru foreldrar hans hjónin Jófríður
Jónsdóttir og Þorsteinn MatthíassoH'
kennari. Hann varð stúdent 1966'
kandidat 1974. Kona hans er Sigríður
Anna Þórðardóttir.
Ólafur Oddur Jónsson vígðist 27-
marz, skipaður prestur í Keflavíkui"
prestakalli, Kjal., frá 1. apríl.
Sr. Ólafur fæddist í Reykjavík 1
nóv. 1943. Foreldrar hans eru hjónin
Kristín Ólafsdóttir og Jón Ásgeir
Brynjólfsson, sölumaður. Hann varð
stúdent 1964, kandidat 1970. Var
næsta ár við framhaldsnám í Ne'r'1
York, síðan kennari við gagnfræða'
skóla í Reykjavík og við Mennta'
skóla Reykjavíkur.
Kona hans er Edda Björk Boga'
dóttir.
Öllum þessum nýju starfsmönnua1
er fagnað heilum huga og góðs
þeim vænzt með Guðs umsjá.
Fyrsti kvenprestur
Það þóttu að vonum nokkur tíðind1'
þegar konu var veitt vígsla til prests'
skapar í þjóðkirkju islands. Afstaðan
til kvenpresta hefur verið mikið
ágreiningsmál víða og valdið flokka'
skilum. Ekki er það viðhorfið til jafn'
réttis karla og kvenna, sem þar marka
skil, þó að svo kunni ýmsum að virð'
ast, kristna menn greinir ekki á uu1
jafna stöðu kvenna mannlega skoða®
og trúarlega séð. Það er guðfræðileð'
ur skilningur á hinu kirkjulega erfð'
ætti, á grundvallarforsendum Bihli'
unnar, svo og á gildi kirkjulegrar
94