Kirkjuritið - 01.06.1975, Síða 18
Nýir prófastar
Þessir prófastar hafa verið skipaðir:
Sr. Sváfnir Sveinbjarnarson í Rang-
árvallaprófastsdæmi frá 1. des. 1974
og sr. Leó Júlíusson í Borgarfjarðar-
prófastsdæmi frá 1. jan. 1975.
Ný prestaköll
Eins og hér hefur komið fram hafa
tvö ný prestaköll verið stofnuð: Fella-
prestakall í Breiðholtshverfi í Reykja-
vík og Njarðvíkurprestakall í Kjalar-
nessprófastsdæmi. Hið fyrrtalda fékkst
tekið inn á fjárlög yfirstandandi árs,
hið síðartalda verður tekið á fjárlög
næsta árs og var heimilað að auglýsa
það um leið og Keflavíkurprestakall,
þó að veiting yrði að miðast við næstu
áramót. Fyrir mannfjölda sakir var
hvor tveggja þessara umbóta næsta
tímabær.
Nýr söngmálastjóri
Nýr söngmálastjóri hefur verið skip-
aður frá 1. okt. 1974, Haukur Guð-
laugsson, organleikari á Akranesi.
Hann er fæddur á Eyrarbakka 5. apríl
1931. Allir sem til hans þekkja vænta
sér mikils af honum, sakir hæfileika
hans, atorku, áhuga og lipurðar. Prest-
ar, organistar og kirkjukórar fagna
honum og hugsa gott til þess að
njóta forustu hans og samstarfs. Hann
veitir oss þá gleði að vera hér við-
staddur á prestastefnunni og mun
hann ávarpa hana síðar.
Mannaskipti hjá Hjálparstofnun
Ingi Karl Jóhannesson sagði lausJ
starfi sínu sem framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar kirkjunnar í byrjun
þessa árs. Ollu því einkahagir. Véf
þökkum honum og biðjum honun1
blessunar. Ráðinn var í hans stað
Guðmundur Einarsson, áður aðstoðar'
æskulýðsfulItrúi, en samvinna hefaf
verið mikil og góð á Biskupsstofu miH'
æskulýðsstarfsins og hjálparstarfsins
og var Guðmundur því öðrum betuf
undir það búinn að takast á henduf
forstöðu fyrir Hjálparstofnuninni fyrif'
varalítið. Því trúa allir, sem til þekkja'
að honum muni vel fara og farnast 1
þessu nýja starfi.
Aöstoöaræskulýösfulltrúi
í starf aðstoðaræskulýðsfulltrúa vaf
ráðinn Jóhannes Tómasson. Hann ef
fæddur í Reykjavík 28. febr. 1952.
sonur hjónanna Önnu Jóhannesdóttuf
og Tómasar Árna Jónassonar tón'
skálds og kirkjuorganista Tómasson-
ar. Jóhannes tók stúdentspróf 1972.
stundaði síðan nám í Kennaraháskól'
anum og tók virkan þátt í félagS'
störfum ungs fólks. Veri hann velkorh'
inn í starf sitt.
Breytingar við Guðfræðideild
Breytingar hafaorðið við Guðfræðideild
Háskólans og nýir menn komið Þar
til kennslustarfa: Jón SveinbjörnssoU.
dócent, hefur verið skipaður prófesso'
í Nýja testamentisfræðum, dr. Hall'
grímur Helgason hefur verið skipaðúr
96