Kirkjuritið - 01.06.1975, Side 24

Kirkjuritið - 01.06.1975, Side 24
Um kvöldið þágum við svo boð stofnunar, sem heitir „Independent Broadcasting Authority.“ Þar fóru fram umræður um það, sem borið hafði fyrir augu um daginn. Ég hafði orðið fyrir nokkrum vonbrigðum þenn- an fyrsta dag. Mér fannst það, sem fjallað hafði verið um, vera lítið kristi- legt, nema einstaka mynd. En í um- ræðunum, sem voru mjög góðar, skýrðist það, að margir þeirra, sem þarna áttu hlut að máli, töldu sig alls ekki vera ,,að boða“ trúna, heldur öllu fremur vera að stuðla að mótvægi gegn því neikvæða og spillandi sjón- varpsefni, sem er á boðstólum. — — Á kristnum grundvelli þó? spyr skrásetjari. — Já, á kristnum grundvelli, þótt það kæmi hvergi beint fram. Margar myndirnar voru þannig, að það kom hvergi beint fram. En vitanlega voru einnig sýndar þarna myndir með sterkum boðskap. Fólk heilaþvegiS Samkoma þessi var að sjálfsögðu ,,ekumenisk“, — þ. e. a. s., að henni stóðu allar kirkjudeildir. En undirbún- ing höfðu rómversk-kaþólskir og anglikanar í Bretlandi annazt, ásamt BBC. Þetta var fjórða alþjóðlega ráð- stefnan, sem haldin er með þessum hætti. í fyrstu umræðum kom þegar í Ijós, að mikilvægi sjónvarps og útvarps er svo gífurlegt í nútíma þjóðfélagi, að allir voru sammála um, að kirkjan yrði að ná tökum á að nota sér slíka fjöl- miðla betur en hún hefur gert. Margar kirkjudeildir hafa reyndar náð nokkr- um árangri í þessum efnum, og má þar nefna til brezku kirkjudeildirnar- Einn þeirra, sem þátt tóku í urnræðum í mínum hópi, vakti t. d. athygli á, hvað það væri, sem byltingarmenn reyndu alltaf fyrst að ná tökum á, þegar bylting er gerð. Það eru fjöl' miðlarnir. Nútíma fjölmiðlar eru not- aðir á svo miskunnarlausan hátt, einnig á íslandi, vil ég leyfa mér að fullyrða, — að fólk er beinlínis heila- þvegið með þeim. Þetta hafa frarn- leiðendur ýmiss konar neyzluvarnings lært fyrir löngu. Þess vegna hafa þeir margir í þjónustu sinni mjög færa sálfræðinga og nota sér fjölmiðla miskunnarlaust og af algjöru tillits' leysi. Það kom mjög fram í þessura umræðum. Eins kom þar fram, að sjónvarp á beina sök á margs konar óhamingju í heimilislífi. Þessar stöð' ugu hvatningar til að eignast þetta eða hitt, gera þetta eða hitt, skapa þörf, sem ekki var til áður. Fólk hefur svo engin tök á að hlýða öllu þessa. og af því sprettur svo leiði og óham' ingja og hvað eina. Niðurstaðan var sem sé sú, að kirkj' an gæti ekki horft fram hjá fjölmiðluÞ' um. En þá kom spurningin, t. d. 1 sambandi við umræður um tilraun'r með messusiði og tilbeiðsluhætti: geta fjölmiðlar komið í staðinn fyrir messn1 og kristið samfélag? — Svarið verður vitanlega nei, — Hvers vegna? "" Vegna þess, að ekki er unnt að ve sakramenti um fjölmiðla, hvorki hljóð' varp né sjónvarp. Annar dagur Næsta dag, þriðjudag 6. maí, hófust störf kl. 9 að morgni. Fundarmenn vo^ stundvísir og unnu flestir af mikluÞ1 102

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.