Kirkjuritið - 01.09.1978, Side 10
ur verið prestur í Blöndudalshólum
og í Goðdölum um sinn og var nú á
sextugasta og sjöunda ári. Hann var
af prestakyni og frændmargur í
prestastétt. Hann varð fyrsti formað-
ur prestafélagsins, en síra Zóphónías
tók við formennskunni af honum að
ári liðnu. Fyrri kona síra Hjörleifs var
Guðlaug Eyjólfsdóttir frá Gíslastöð-
um á Völlum, en kunnastir barna
þeirra urðu rithöfundurinn Einar H.
Kvaran og síra Jósef á Breiðabólstað
á Skógarströnd. Síðari kona síra
Hjörleifs var Björg Einarsdóttir frá
Mælifellsá í Lýtingsstaðahreppi, en
son þeirra varsíraTryggvi H. Kvaran á
Mælifelli. Síra Hörleifur dó í Reykja-
vík árið 1910.
Síra Stefán M. Jónsson, prestur á
Auðkúlu, er lengst til hægri í fremstu
röð. Hann hafði áður verið prestur á
Bergsstöðum og var á fertugasta og
sjöunda ári, þegar hér var komið
sögu. Síra Stefán var dáður radd-
maður og þótti skörulegur prestur.
Hann var tvíkvæntur. Fyrri kona hans
var Þorbjörg Halldórsdóttir frá Úlfs-
stöðum í Loðmundarfirði. Meðal
barna þeirra voru þeir síra Eiríkur, er
sat nærri hálfa öld á Torfastöðum í
Biskupstungum, og síra Björn, ersíð-
ast var á Auðkúlu. Síðari kona síra
Stefáns var Þóra, dóttir síra Jóns
Þórðarsonar, prests á Auðkúlu, al-
systir síra Theodórs á Bægisá. Þau
áttu tvær dætur, og var önnur þeirra
Sigríður, kona síra Gunnars Árna-
sonar. Síra Stefán dó 17. júní 1930 á
Auðkúlu.
Síra Árni Björnsson, prestur á
Sauðárkróki, er lengst til vinstrri í
annarri röð. Stofnfundurinn var hald-
168
inn að heimili hans, prestsetrinu á
Sauðárkróki. Síra Árni var þá tæpra
þrjátíu og fimm ára. Hann var einn
þriggja systkinasona, er prestar voru
samtímis um sína daga. Hinir voru
síra Arnór Árnason í Hvammi og Síra
Ludvig Knudsen á Breiðabólstað.
Síra Árni fékk síðar Garða á Álftanesi
og sat í Hafnarfirði frá 1928. Kona
hans var Líney Sigurjónsdóttir frá
Laxamýri í Aðaldal, systir Jóhanns,
rithöfundar. Þau áttu ellefu börn.
Einna kunnust þeirra munu síra Sig-
urjón Þ. Árnason, Árni Björn, læknir á
Grenivík og Sigurlaug, húsfreyja að
Hraunkoti í Lóni. Síra Árni andaðist í
Hafnarfirði í marz 1932.
Síra Hálfdán Gudjónsson, prestur
að Breiðabólstað í Vesturhópi. Hann
var þrjátíu og fimm ára og þeir síra
Árni því jafnaldrar. Var hann son síra
Guðjóns Hálfdánarsonar, bróður
Helga lektors Hálfdánarsonar, og
konu hans, Sigríðar, dóttur síra Ste-
fáns Stephensens á Reynivöllum.
Hann vígðist til Goðdala, fékk síðar
Breiðabólstað í Vesturhópi og síðast
Reynistaðarklaustursprestakall, er
síra Árni Björnsson fór suður. Arið
1928 varð hann annar vígslubiskup
Hólastiftis, að síra Geir Sæmunds-
syni látnum. Kona hans var Herdis
Pétursdóttir frá Álfgeirsvöllum í Lýt-
ingsstaðahreppi, móðursystir síra
Þorsteins Briems. Son þeirra er Helg'
Hálfdánarson, rithöfundur. Síra Hálf-
dán var formaður Félags presta í hinu
forna Hólastifti frá 1928 til dauða-
dags, 7. marz 1937.
S/'ra Björn L.BIöndal, prestur á Hofi
á Skagaströnd, aðeins tæpra tuttugu