Kirkjuritið - 01.09.1978, Qupperneq 71
Um frelsi kristins manns, eftir Martein Lúther
En hér sérð þú, hvers vegna trúin er með réttu svo mikils metin,
að hún uppfylli öll boðorð og gjöri manninn réttlátan án allra
annarra verka. Því að þú sérð hér, að hún er ein heldur fyrsta
boðorðið, þar sem skipað er: Þú skalt heiðra Guð þinn. Þótt þú
nú værir eintóm góð verk fram í tær, þá værir þú þó ekki
réttlátur og gæfir ekki Guði dýrðina að neinu leyti, og þá héldir
þú ekki alfremsta boðorðið. Því að Guð verður ekki heiðraður
eins og hann er í sannleika, nema honum sé eignaðursannleik-
ur og allt gott. En það gera engin góð verk, heldur aðeins trú
hjartans. Hún er þess vegna réttlæti mannsins og fylling allra
boðorða.
Því að sá, sem heldur fyrsta höfuðboðorðið, uppfyllir vissu-
lega og auðveldlega einnig hin boðorðin. En verkin eru dauðii;
hlutir, geta hvorki heiðrað né vegsamað Guð, þótt þau geti
gerzt og verið unnin Guði til heiðurs og vegsemdar. En vér
leitum hér þess, sem er ekki unnið eins og verkin, heldur
gerandans og meistara verksins, sem heiðrar Guð og vinnur
verkin. Það er ekkert annað en trú hjartans, sem er höfuð og
eðli guðhræðslunnar. Því að það er háskalegt og skuggalegt
tal, þegar kennt er, að uppfylla skuli boð Guðs með verkum;
uppfyllingin verðurað komafyrirtrúnaá undan öllum verkum,
og verkin koma á eftir uppfyllingunni, eins og vér munum
heyra.
Úr þýðingu sr. Magnúsar Runólfssonar.
229