Kirkjuritið - 01.12.1978, Síða 53
biblíulestri. Síra Eiríkur J. Ei-
ríksson, prófastur, las fyrir og skýrði
9- kafla Rómverjabréfsins. Þá flutti
Björn Helge Sandvei, lektor við
Menighetsfakultetet í Osló, erindi um
Gýðinga og gyðingdóm í samtíð, og
eftir hádegi ræddi dr. Björn Fjárstedt,
fraeðslustjóri við Kristniboðsstofnun
Sænsku kirkjunnar, um ísrael sem
fyrirmynd þjóðanna. Á eftir síðara
erindinu urðu nokkrar almennar um-
raeður. Um kvöldið efndu Finnar til
kvöldvöku og stjórnaði síra Alpo
Hukka henni. Fjallaði hann einkum
um starf finnska kristniboðsfélagsins
' Jerúsalem.
Síra Alpo Hukka er forstöðumaður
^innska kristniboðsfélagsins, sem er
e|n hinna viðamestu kristniboðs-
stofnana í norðurálfu. Hann starfaði
uni skeið sem kristniboði í Namibíu.
Að morgni laugardags 23. sept., fór
síra Magnús Guðjónsson yfir 10.
^afla Rómverjabréfsins, en eftir há-
Ue9i voru haldin tvö erindi. Síra Axel
Jorm, sonur hins kunna prófessors,
Fredriks Torms, hélt fyrra erindið og
'jallaði umafstöðu nútímaGyðingatil
lesu- Hann var um áratugi formaður
a9nska Gyðingakristniboðsfélagsins
°9 er nú formaður hinnar Norrænu
s9rnstarfsnefndar og hinnar lút-
nersku evrópunefndar um kirkju og
9yðingdóm, LEKKJ, en hún starfar á
^gum Lútherska heimssambands-
ns- Síðara erindið hélt dr. Magne
®bö, prófessorvið Menighetsfakul-
e'et í Osló. Fjallaði hann um endur-
. at kirknanna á afstöðunni til Gyð-
T*9a. Sæbö er nú formaður Norska
yoingakristniboðsins.
t-lm kvöldið stjórnaði Karl William
Weyde, lektor við Menighets-
fakultetet, kvöldvöku um kristniboð
Norðmanna. Weyde er kennari í
Gamla testamentisfræðum, eins og
dr. Sæbö. Sandvei, sem fyrrgetur, ber
hins vegar ábyrgð á allri grísku-
kennslu við Menighetsfakultetet.
Sunnudag, 24. sept. hafði síra Kol-
beinn Þorleifsson stutta morgunhug-
vekju, en eftir morgunverð flutti frú
Gun Friedner, sem er guðfræðingur
og veitir forstöðu þeirri deild Kristni-
boðsstofnunar Sænsku kirkjunnar, er
fjallar um samskipti kirkju og Gyð-
inga, erindi um kristniboð og/eða
samræður. Erindið var afar vandað og
málflutningur snjall, en efnið er við-
kvæmt og hleypir auðveldlega kappi í
kinn, enda urðu nokkuð heitar um-
ræðurað því loknu.
Við messu eftir hádegi prédikaði
síra Torm í stað dr. Sigurbjarnar bisk-
ups, sem ekki gat komið því við að
vera í Skálholti þann dag. Síðdegis
flutti síraTorm einnig erindi um Mess-
íasarvonir Gyðinga annars vegar og
kristinna hins vegar. Um kvöldið héldu
svo tvær finnskar listakonur tónleika í
Skálholstskirkju. Marja-Liisa Nurm-
inen söng hebreska Biblíu- og bæna-
söngva og nokkrar aríur eftir Hándel,
og Gunnvor Helander, tónlistarstjóri
Finnska kristniboðsfélagsins lék und-
ir. Jafnframt lék Gunnvor Helander
verk eftir Vivaldi og Bach. Marja-Liisa
Nurminen er tónlistarkennari að at-
vinnu og hefur mjög fagra sópran-
rödd. Hún starfaði ásamt manni sínum
á vegum Finnska kristniboðsfélagsins
í Jerúsalem á árunum 1964-1969 og
stundaði þá jafnframt söngnám hjá
Dimitri Rocco, prófessor, sem er
291