Fanney - 01.05.1908, Blaðsíða 28

Fanney - 01.05.1908, Blaðsíða 28
2(5 F A N N E Y. 7 (BsRirnar þrjár. (Þýtt úr dönsku). & 50 N U N G UII nokkur lét eitt sinn það boð út ganga, að hverjum aðkomumanni, er kæmi til hallar hans, skyidi gefa heilan fisk. Einnig skipaði hann þjónum sínum að liafa nákvæmar gætur á, hvernig mennirnir borð- uðu fiskinn. Borðaði gesturinn alveg öðrumegin af fiskinum og sneri lionum síðan við lil þess að eta það sem var binumegin, áttu þjónarnir að taka hann fast- an og selja hann í fangelsi. Síðan átti að hálshöggva hann eftir þrjá daga. Konungur leyfði þó föng- unum að bera fram þrjár óskir, er hann lofaði við drengskap sinn að uppfylla. Auðvitað mátti fanginn ekki óska neins, er orð- ið gat lil að frelsa líf hans. Margir menn voru búnir að láta lííið fyrir lögum þessum, þegar greiíi nokkur og sonur hans komu til hallarinnar. f*eim var geíinn fiskur eins og öðrum. Greifinn borðaði með góðri lyst. I^egar hann var búinn að eta alt öðrumegin af fiskinum og ætlaði að fara láta upp í sig bita af hinni hliðinni, þá vissi hann ekki fyr til, en vopnaðir menn rudd- ust inn og tóku liann höndum og lluttu hann í fangelsi. Síðan voru honum sögð hin hryggi- legu forlög er biðu hans. Ur- vinda af sorg og hugarangri bað sonur greifans konunginn, að leyfa sér að deyja í stað föður síns. Konungurinn veilli honum þá bæn með glöðu geði. Greif- inn var síðan látinn laus, en sonur lians settur í varðhald í staðinn. Þegar l)úið var að loka greifa- soninn inni í fangelsinu fór liann að gefa sig á tal við varðmennina. »Eins og þú veizt, þá hefi ég leyfi til að bera fram þrjárósk- ir áður en eg dey. Farðu því til konungsins og segðu honum, að senda dóttur sína og prest hingað lil mín í varðhaldið, því ég óski að giftast dóttur hans«. Konungi þótti ekki goll að verða að uppfylla þessa ósk fang- ans, en hann varð að standa við orð sín. Síðan sendi liann dóttur sína til varðhaldsins — luin virlist ekki hafa neitt á inóti því — og voru þau geíin saman í beilagt hjónaband. Saga þessi gerist á þeim tím- um þegar konungarnir geymdu gull sitt og gimsteina í kjöllur- um og turnklefum, eins og þeir gera sumir enn þann dag í dag.

x

Fanney

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fanney
https://timarit.is/publication/463

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.