Fanney - 01.05.1908, Page 39

Fanney - 01.05.1908, Page 39
FANNEY. 37 Ekkert nafn stóð undir þess- ' um línum, en konan þekti rit- liöndina. Það var greifaekkjan, sem hafði skrifað þetta og látið þessa góðu gjöf í vasann á brúðarkjólnum. Mörg ár eru liðin. í einni af hinum skrautleg- ustu kirkjum borgarinnar voru ungar persónur að gifta sig. — Við hlið brúðarinnar stóð ung stúlka, mjög lík lienni, en fyrir aftan þær stóð öldruð kona og horfði með ánægjusvip á þá hátíðlegu athöfn, sem hér var að fara fram. Ég þekti þær undir eins. Það var konan, sem einu sinni var veik, og dætur hennar báðar. Jósefína var að gifta sig. Þegar neyðin var stærst, var hjálpin næst. Og þegar fátæktin livarf, var sjúkdómurinn bráð- lega horfinn, og nú var gamla konan orðin hraust og hress. »Er þelta nú brúðarkjóllinn góði, sem Jósefína er í?« spurði ég hana. »Já«, svaraði hún. »Svo ætla ég að geyma hann þangað lil María giftir sig. En svo — svo á hann að fylgja mér í gröfina«. (Þýtt úr dönsku). SNJALLRÆÐI. Gárungi nokkur kom kaldan vetrardag inn í veitingahús og langaði til að setjast nærri ofn- inum, en þar var þá alskipað áður. Hann gengur þá til greiða- salans og biður hann að gefa hestinum sínum steik og vín og vindil á eftir. Honum þótti þetta kynlegt, en lét þó þjón fara með það út í hesthús. Gestirnir fóru nú að verða forvitnir og lang- aði til að sjá skepnuna, sem ætti að ÍVi þessar kræsingar. Þyrptust þeir allir út á eftir þjóninum, en hesteigandinn var einn eftir inni. Tók hann sér nú hezta sætið við ofninn. — Eftir litla stund kom allur lióp- urinn inn altur og segir, að hest- urinn vilji ekki smakka á mat- num. — »Hvað er þella? Vill hann ekki matinn? Það er þá hezt að ég horði liann sjálfur. Það fer líka svo ljómandi vel um mig hérna. Eg þakka ykkur fyrir ómakið«.

x

Fanney

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fanney
https://timarit.is/publication/463

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.