Fanney - 01.05.1908, Blaðsíða 50
48
F A N N E Y.
Faðirinn: »Nei, mér leiðisl
svo mikið að heyra lil þín, þegar
þú fer að blása í, hana, og þú
gerir mér ónæði með henni«.
Einar: »Nei, ég skal aldrei
blása í hana, nema þegar þú
sefur«.
í DÓMSALNUM.
Dómari: »Nú ætla ég að lesa
upp nöfn allra þeirra, sem vitni
eiga að bera i þessu máli. Þeir,
sem hér eru staddir, segi já,
en liinir, sem ekki hafa komið,
segi nei«.
-•-
DÝR HATTUR.
Frœndka: »Nú get ég ekki
keypt handa þér kökur, Jói litli,
af því að ég hef gleymt peninga-
buddunni minni heima«.
Jói: »Þú gelur keypt fyrir pen-
ingana, sem þú hefir i hattinum
þínum«.
Frœndka: »Hvað áttu við?«
Jói: »Hann pabbi sagði í gær,
að það lægju miklir peningar í
svona dýrum hatti, og nú skul-
um við nota þá«.
ALDREI HEIMA.
Meðal bréfánna, sem bæjar-
pósturinn hafði meðferðis, var
eitt til hans sjálfs. Hann kom
tvisvar heim til sín og spurði,
livort þessi maður, sem hér væri
nefndur utan á bréfinu, væri
heima. En j)egar því var neit-
að, lók hann bréfið og skrifaði
á það: Gengur ekki út; viðtak-
andi aldrei heima. Síðan skil-
aði hann því aftur á póstliúsið.
-•--
SEÐLARNIR.
Ferðamaður: »Mig langar til
að sjá þessa höll að innanverðu«.
Hallarvörður: »Það getið þér
fengið, ef þér hafið slcírnar-,
bólusetningar- eða — eða—fimm-
króna-seðil á yður«.
-•-
TVEIR VEGIR.
Bína: »Hann Bjössi bróðir
minn segist ætla að ganga menta-
veginn, þegar hann verður stór.
En hvaða veg á ég þá að ganga?«
Faðirinn: »Eg veit ekki. Hvað
vilt þú?«
Bína: »Eg lield ég vilji helzl
ganga — Laugaveginn!«