Syrpa - 01.03.1914, Síða 3

Syrpa - 01.03.1914, Síða 3
SYRPA. FRUMSAMDAR, ÞÝDDAR OG ENDURPRENT- AÐAR SÖGUR OG ÆFINTÝR OG ANNAÐ TIL SKEMTUNAR OG FRÓÐLEIKS. II. Arg. 1914. 3. Hefti GUÐRÚN GAMLA. Smásaga Eftir JÓHANNES FRIÐLAUGSSON. Eg man það eins vel og þaðhafði gjörst í gær, þegar eg í fyrsta sinni var látinn fara með ærnar í þeim til- gangi að sitja yfir þeim. Eg var að eins 10 ára og var nýkominn að Hóli; en þar átti eg að vera um sumarið og sitja yfir ánum. Það var yndælasta veður um morguninn þegar eg lagði á stað með askinn minn í annari hendinni en stafinn í hinni. Eti af því það var fyrsti dagurinn lét húsbóndinn gamla konu er Guðrún hét, fara með mér, og átti hún að leiðbeina mér hvernig, og hvar, eg ætti að beita ánum í framtíðinni. Að vísu var eg ekkert hrifinn af því að iliafa hana með mér, en samt þótti mér það heldur betr.a, því eg var ,hálf huglítill að fara einn með ánurn, þar eg var al-ókunnugur. Bærinn Hóll stendur undir hárri fjallshlíð, og eru háir hamrar rétt fyrir ofan bæinn, og kemst enginn þar upp nema fuglinn fljúgandi. Fyrir ofan klappirnar tók við víð- áttu mikil iingheiði, og þar áttu ærnar að vera. En til þess aö kom- ast upp á heiðina þurfti að reka ærnar noklturn spöl meðfram hörnr- unum og svo upp einstigi sem lá á snið upp á heiðina. Við létum ærnar renna með hægð upp götuslóðirnar og gengum dá- lítinn kipp á eftir þeim, en þegar upp á brúnina kom settum við okk- ur niður og létum ærnar dreifa sér um brekkurnar. Leið svo lítil stund'

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.