Syrpa - 01.03.1914, Blaðsíða 64

Syrpa - 01.03.1914, Blaðsíða 64
Úr dularheimi. VI. Merkileg sýn. Sálmaskáldið mikla og dýrlega, séra Hallgrímur Pétursson, deySi sem kunnugt er 2. október 1674, eftir þungar og langvinnar þjáning- ar af holdsveiki. Merkileg sýn fi að hafa sést viö andlát hins mæta manns, sem hér verður frá skýrt. Maður er nefndur Jón og var Þóröarson. Hann var vinnumaður í Haga á Baröaströnd, og haföi það heimilisstarf á höndum aö gæta sauöa á vetrum. Jón var álitinn maður einfaldur, en sannmáll og trúr. Hann svaf á lofti yíir bæjar- dyrum, því rísa skyldi árla úr rekkju. Hina sömu nótt sem Hallgrímur prestur skildi við heim þenna, vakn- aöi hann við það, aö honum heyrð- ist sem stormhvinur færi yfir bæinn. Hann gekk út í skyndi og gætti til veðurs. Úti var logn og himinn heiður, með óvenju miklu stjörnu- skini, og svo bjart sýndist honum vera yfir landi og sjá, að undrum sætti, því lágnótt var yfir jörðu, og tunglsljós eigi. Yzt í suðurátt, við sjóndeildar- hring, sá hann roða mikinn sem frá rísandi sólu, er breiddist út um lofthvolfið til beggja hliða. Hann hafði heyrt sagt frá því, að frá gjósandi eldfjöllum slæi oft roða á himindjúpið í kring, datt honum í hug að þessu myndi þannig varið, og einhverstaðar í suðrinu væri eld- fjall að brenna. Þegar hann hafði horft á þetta um stund, barst að eyrum hans sönghljómur úr sömu átt. Söng- hljómurinn skýrðist og virtist alt af færast nær og nær honum. Hljómurinn var svo unaðslegur, að slíkan hafði hann aldrei heyrrt um sína daga. Hann hlustaði hugfanginn áþenn- an indæla hljóm, er hann trúði að væri frá engilhörpu eilífðarinnar, því oft hafði hann heyrt talað urn það, hvað söngrödd englanna væri fögur og dýrleg, eins og þar væri einhverjir til frásagna. Þegar minst varði sá hann mann- fjölda mikinn fara fram hjá sér í loftinu, er stefndi í austurátt. Hann sá að þetta var líkfylgd, bæði mikil og vegleg. Búningur fólksins var hvítur sem mjöll, og leiftraði svo mikill glans frá honum, sem gulli í sólarljósi. En fremst sá hann fijúga marga snæhvíta fugla í þéttri þyrping, eins og vegvísendur. Á undan og eftir fór hin prúö- búna söngmfinnasveit, en umhverf- is líkkistuna sjálfa og þá sem hana báru, var sem skínandi sólarbirta. Þetta leið frant hjá honum í fárra faðnia fjarlægð, og eigi hraðar en svo, að svaraði til fiýtis meðal göngumanns. Hann gat eigi lýst þessu nánar, því bæði Ijósmagnið umhverfis þessa fögru fylking, og svo óttinn sem
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.