Syrpa - 01.03.1914, Side 8

Syrpa - 01.03.1914, Side 8
134 SYRPA ,,Nú hverfur Arnór í kvöld“, hvíslaði frænka mín aS mér. „Afhverju veiztu þaS?“ spurðieg. ,,Af því aS drengurinn kom“, sag-ði hún; ,,hann hefir komiS þrisv- ar áSur, og í hvert skiftiS hefir Arnór horfiS rétt á eftir“. Eg lét sem niig vatSaSi ekki minstu vitund um þaS, hvort hann færi í burtu, eSa yrSi heima. En eg einsetti mér nú samt, að hafa gæt- ur á athöfnum hans, þetta kvöld, og fylgja honum el’tir eins lengi og eg gæti, þó eg yrSi á ferSinni alla nóttina. ÞaS eina, sem eg óttaðist, var þaS, aS hann yrSi allur íburtu, þeg- ar eg kæmi heim aftur frá vinnu minni um kveldiS. — En þegar eg kom heim, sat hann inni í herberg- inu okkar og var aö lesa; og þaS var ekki sjáanlegt neitt ferSasniS á hcnum. Þegar klukkan var átta um kvöld- iö, fóru þau Anna og Kjartan vest- ur í bæinn, og Björn fáum mínútum síöar. En Arnór sat enn og las. Eg tók mér bók og fór lílca aS lesa. Alt í einu stóö Arnór upp, tók hatt sinn, fór út, gekk fram á ár- bakkann og settist þar. Eg horföi á hann út um gluggann og beiö þess aS hann stæði aftur upp og legði af stað suðvestur strætiS. Klukkan varð níu, og hann hreyföi sig ekki. Klukkan varð hálf-tíu, og enn sat hann þar í sama staS. Og eg fór aS hugsa, aö hann ætlaSi ekki í burtu þessa nótt. En skömmu síðar spratt hann snögglega á fæt- ur, gekk norður bakkann fáein skref og beygSi inn á Disraeli- stræti. Þá brá eg ur.dir eins viö, gekk fram í ganginn, kallaöi til frænku ntinnar og sagSi henni aS eg ætlaöi vestur í bæinn, og mundi ekki koma heim fyr en um eöa eftir miönætti. Síöan hljóp eg út, og hélt af staö á eftir Arnóri. Hann gekk í fyrstu fremur hægt, eins og hann væri aö ganga sér til skemtunar og þyrfti ekkert aö flýta sér. En brátt fór hann að hvetja sporiö; og þegar hann var kominn aö járnbrautinni, hljóphann viS f(5t alla leiö vestur að Aöalstræt- inu. Þá fór hann aftur aö ganga ögn hægra, en samt gekk hann all- hratt, og hélt suSur strætiö aö austan-verðu. — Eg var alt af í há- mót á eftir honum; og meðan viö fórum eftir Aöalstrætinu, gekk eg að vestanverðu, og gætti þess, aS missa ekki sjónar af honum. Eg haföi heyrt þaö sagt, aö þaS væri siSur leynilögregluþjóna, aö ganga ekki sömu megin í strætinu og sá, er þeir væru aS veita eftirför, og ætlaöi eg að fylgja þeirri reglu, þar sem því yrði við komið. — ÞaS var vel bjart á strætunum, þó fá væri götuljósin, því tunglið skein glatt; og þó veöriS væri gott, og þetta væri laugardagskvöld, var tiltölu- lega fátt af fólki á ferS um göturnar. Og átti eg þess vegna hægara meö aS sjá til ferða Arnórs, þó viö geng- um sinn hvoru megin í breiðu stræti. ViS héldum nú suöur ABalstrætiS og gekk Arnór mjög rösklega. Eg tók eftir því, aB hann leit stöku sinnum um öxl, eins og sá, er ótt- ast aS óvinir séu á bælum sér. Og einu sinni, þegar hópur affólkikom á móti honum sunnan strætið, þá beygöi hann snögglega inn á þver- götu eina, en sneri undir eins viö aftur, þegar fólk þetta var fariS noröur hjá. (En í þessum hóp voru þau Kjartan og Anna).

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.