Syrpa - 01.03.1914, Síða 37

Syrpa - 01.03.1914, Síða 37
ORUSTAN VIÐ SARATOGA. Eftir Sir Edward Creasy. (Lauslepa þýtt af'síra GutSm. Árnasyni). Norðurnýlendurnar fimm Massa- cliusetts, Connecticut, Rhode Is- land, New Hampshire og Vermont, sem vanalega eru nefndareinu nafni Ný-Englands ríkin, voru aðal-stðð uppreistarinnar gegn heimalandinu. Mótstaðan var ekki eins áköf og útbreidd í aöal-nýlendunni í New York-ríkinu og enn þá síður í Penn- sýlvaníu, Maryland ogððrum suður- nýlendunum, þó aistaðar bæri ógn- ar mikið á henni. Sérstaklega má geta þess,að margir hinna atkvæða- mestu manna í Virginíu sýndu mik- inn áhuga í frelsisbaráttu Ameríku; en einkum var það þó meðal afkom- enda hinna ströngu ,,púrítana“ í Ný-Englands ríkjunum, sem að andi Cromwells og Wanes var vakandi. Ibúar þeirra buðu brezka konungs- valdinu fyrst byrginn í vopnaðri uppreist og þeir voru ákveðnastir í því að berjast til þrautar fremur en að afsala sér nokkrum réttindum. Þeim hafði tekist að neyða brezka herliðið til að yfirgefa Boston 1775, og viðburðir ársins 1776 höfðu gert New York.sem konungssinnar náðu á sitt vald það ár, að aðalstöð allra framkvæmda brezka hersins. Maður þarf að eins að renna aug- um yfir landabréf af Ameríku til að sju, að, J-Iudsorj-áin, sem fellur í Atlantshafið hjá New York, rennur frá norðri til suðurs bak við Ný- Englands ríkin og myndar hér um bil rétt horn við strandlínu þeirra. Til norðurs frá Hudsonánni sér mað- ur röð af smávötnum, sem liggja að landamærum Kanada. Það er nauð- synlegt að taka vel eftir þessum landslagseinkennum til að skilja hernaðaraðferð Englendinga 1777, aðferð, sem orustan við Saratóga ó- nýtti með öllu. Englendingar höfðu all-mikinn herafla í Kanada, og 1776 höfðu þeir algerlega rekið af höndum sér ameríska herinn, er hann gerði árás á bygðir þeirra þar. Brezka ráða- neytið afréð að færa sér í nyt næsta ár hagræði það, sem yfirráðin yfir Kanada buðu, ekki að eins til þess að verjast þaðan heldur og til þess að gera áhlaup á uppreistarnýlend- urnar, seni riði þeim að fullu. í því skyni var brezka herliðið í Kanada aukið stórum. Sjö þúsund æfðir hermenn voru sendir þangað frá Englandi ásamt vel útbúinni stór- skotaiiðsdeild; og voru valdir og reyndir berforingjar settir yfir þetta lið. Mikill herútbúnaður var einnig sendur handa kanadiskum sjálfboða- libum, sem gert var ráð fyrir að tækju þátt í áhlaupinu. Her sá,

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.