Syrpa - 01.03.1914, Síða 39

Syrpa - 01.03.1914, Síða 39
ORUSTAN VIÐ SARATOGA 165 aftur á móti olli gremjan, sem grimdarverk þeirra vöktu, því, aö menn sýndu liöi Burgoynes fullan fjandskap, þar sem það fór yíir. Burgoyne safnaöi liði sínu saman nálægt ánni Bouquet að vestan verðu við Chatnplainvatnið. Sið- an hélt hann Rauðskinnunum stríðs- veizlu 21. júní 1777 og hélt ræðu yíir þeim um það, hve nauðsynlegt væri, að þeir legðu niður sín vana- legu grimdarverk á varnarlausu fólki og herteknum mönnum. Um leið gaf hann út viðhafnarlega orð- aða yíirlýsingu til Ameríkumantia og hótaði þeim, sem mótþróa sýndu öllum hörmungum Indíána ófriðar ekki síður en Norðurálfumanna. Liðið var síðan liutt eftir vatninu til Crown Point, þar sem Ameríku- menn áttu virki við norðurendann á afrensli því, sem tengir George- vatnið við Champlain-vatnið. Þar lenti hann mótstöðulaust; en það reyndist erfiðara að vinna Ticonder- oga-virkið, sem stóð tólf mílur fyrir sunnan Crown Point; var það álitið erfiðastiþröskuldurinná herferðinni. Ticonderoga stóð við veginn með- fram vötnunum og var skoðað sem lykillinn að leið þeirri,sem Burgoyne ætlaði að taka. Englendingar höfðu beðið ósigur í árás, sem þeir gerðu á virki þetta í stríðinu við Frakka 1758, og höfðu beðið milcið mann- tjón. Burgoyne gerði umsát um það af mikilli herkænsku; og ame- ríski hershöfðinginn, St. Clair, sem hafði aðeins 3000 illa búna menn, yfirgaf það 5. júlí. Hefði hann ekki tekið þann kost, má telja víst að lið hans hefði annaðhvort fallið eða órðið að gefast upp; en það, þó að fátt væri, var aðalliðið, sem þá var tilbúið að verja Ný-England á víg- vellinum. St. Clair svaraði rétti- lega er hann fekk þunga áfellisdóma hjá sumum samlöndum sínum, fyrir að hafa yfirgefið virkið, að hann hefði mist eina varðstöð en bjargað landinu. Lið Burgoynes veitti Ame- ríkumönnum eftirför, og fóru þeir halloka fyrir því nokkrum sinnum; einnig tók það af þeim meiri hlut- ann af fallbyssum þeirra og vistum. Tap Englendinga í viðureign þess- ari var mjög lítið. Herinn hélt suður meðfram George-vatninu til Skenesboro. Þaðan var leiðin til Fort Edward mjög ógreiðfær; land- ið var sundurgrafið af lækjum og keldum, og víða höfðu óvinirnir höggvið niður tré og skilið eftir aðrar torfærur á leiðinni. Her Ame- ríkumanna lét stöðugt undan síga. Burgoyne náði Hudson-ánni 30. júlí. Þangað til hafði hann yfirstig- ið alla erfiðleika, seni óvinir hans og náttúran höl'ðu sett á leið hans. Lið lians var í ágætu ástandi og í allra bezta skapi; og hættur herferðar- innar sýndust flestar vera yfirstign- ar nú er þeir voru komnir á bakka árinnar, sem átti að vera samgöngu- vegur milli þeirra og brezka hersins fyrir sunnan. En tilfinningar þeirra og ensku þjóöarinnar yfirleitt, er kunnugt varðumþenna sigur þeirra, koma bezt í ljós hjá rithöfundi eitt- um enskum fráþeim tímum. BurkeO lýsir sigurvinningum þeirra þannig í Annual Register 1777. ,,Þannig kom hvert happið fyrir á fælur öðru, scm sópaði burt allri mótstöðu á leið norðurhersins. Það er sízt að undra þó að bæði foringj- ar og óbreyttir liðsmenn fögnuðu yfir láni sínu, og héldu að hepni t) Edinund Burke nafnkendur enskur stjórnmálamaður.

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.